Armenía - Ísland: 0-50 (0-19, 0-9, 0-22)
04.01.2006
Strákarnir í U20 höfðu algjöra yfirburði í fyrsta leik sínum gegn Armeníu. Orri Blöndal einn af þremur nýliðum frá SA í liðinu var maður leiksins skv. frétt á ÍHÍ.
Á málþingi Norðurorku sem haldið var í dag 29. desember var Skautafélagi Akureyrar afhentur styrkur, kr. 1.000.000,- til minningar um Magnús E. Finnsson fyrrverandi formann Skautafélagsins.
Skautafélag Akureyrar sendir Norðurorku hf. innilegar þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf.
Í dag 28. des kl. 16:00 verður hið árlega hóf þar sem veitt verða verðlaun og viðurkenningar til þeirra sem hafa orðið íslandsmeistarar á árinu. Einnig verður tilkynnt hver hlýtur titilinn íþróttamaður Akureyrar árið 2005. Allir íslandsmeistarar SA á árinu eru að sjálfsögðu velkomnir.