U18 landslið kvenna með silfurverðlaun á HM þriðja árið í röð

U18 kvennalandslið Íslands vann til silfurverðlauna á HM í 2. deild B sem hefur farið fram í Cape Town í Suður-Afríku síðustu daga. Þetta er þriðja árið í röð sem liðið vinnur til silfurverðlauna á þessu móti en Ísland tryggði sér silfrið með frábærum sigri á Taívan í lokaleiknum þar sem Ragnheiður Alísar Ragnarsdóttur skoraði gullmarkið í framlenginu. Rúmenía kom sá og sigraði en liðið koma upp í þessa deild á síðasta ári og fóru beinustu leið upp. Mótið litaðist nokkuð sterkt af illkvitinni matareitrun sem að liðið lennti í við komuna til Suður Afríku en fleiri lið urðu fyrir barðinu á þessari óværu. Íslenska liðið tapaði stigum í öðrum og þriðja leik mótsins en komu sterkar tilbaka og unnu síðustu tvo leikina til þess að ná öðru sætinu í riðlinum.  Kolbrún Björnsdóttir var valinn besti leikmaður Íslands í mótinu og Sólrún Assa Arnardóttir hlaut þann heiður að vera valinn besti sóknarleikmaður mótsins. Við óskum liðinu til hamingju með árangurinn og frammistöðuna í mótinu.