Karfan er tóm.
Akureyri.net fjallaði nýverið um nammipökkun í Skautahöllinni fyrir Öskudag. Fjáröflunin, sem hefur fest sig í sessi undanfarin ár, krefst góðrar samvinnu og þátttöku margra.
Eftir Snæfríði Ingadóttur – Akureyri.net
Lakkríslyktin liggur í loftinu og litlar hendur keppast við að pakka sælgæti í poka. Nammipokar hrúgast upp í Skautahöllinni, enda aðeins vika í öskudag og stærsta fjáröflun Listskautadeildar Skautafélags Akureyrar í algleymingi.
Á efri hæð Skautahallarinnar er þessa dagana hálfgerða nammiverksmiðju að finna þar sem skautaiðkendur og foreldrar pakka skipulega sælgæti í nammipoka fyrir fyrirtæki í bænum sem notaðir eru á öskudaginn. „Fimm nammitegundir fara í hvern poka og við erum að pakka um 4500 pokum í ár fyrir 80 fyrirtæki,“ segir Steinunn Ásta Þórarinsdóttir, gjaldkeri listskautadeildarinnar.

Pakkað og keyrt út til fyrirtækja
Fjáröflunin hefur verið fastur liður í starfi LSA í að minnsta kosti 15 ár, ef ekki lengur, og hefur haldist svipuð að umfangi undanfarin ár. Auk nammipokanna kaupa sum fyrirtæki einnig annað sælgæti beint af LSA á góðum kjörum fyrir þennan stærsta sælgætisdag ársins. Pantanirnar eru síðan keyrðar beint heim að dyrum, sem gerir þetta að þægilegri lausn fyrir fyrirtæki í bænum. Þá hefur deildin einnig verið að bjóða upp á hollari kosti, eins og harðfisk, svo allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Steinunn segir að mörgum fyrirtækjum finnist þægilegt að hafa tilbúna nammipoka til að rétta krökkunum sem koma að syngja á öskudaginn. Svo sé allur gangur á því hvernig þau hagi úthlutuninni, hvort hvert lið fái 1-2 poka eða meira.
Lítil nammiverksmiðja
Skautaiðkendur taka sjálfir virkan þátt í verkefninu og er pakkningin hluti af æfingaprógramminu í nokkra daga, enda ágætis þrekæfing að bera nammi á milli hæða. „Þeim finnst þetta mjög skemmtilegt og stemningin verður oft eins og í lítilli verksmiðju,“ segir Steinunn. Hún bætir við að þó að freistingarnar séu miklar með allt þetta nammi fyrir framan sig þá sé reglan skýr: nammið er ekki opnað í Skautahöllinni en hins vegar eru skautaiðkendur hvattir til þess að láta ljós sitt skína á öskudaginn og heimsækja fyrirtækin sem eru að kaupa nammið og reyna að vinna það til baka með söng.

Með góðri samvinnu er hægt að láta hlutina ganga hratt. LSA hefur keyrt þessa fjáröflun árlega í fjöldamörg ár svo komin er góð rútína á nammipökkunina.
Ómetanlegur stuðningur fyrirtækja
Fjáröflunin skiptir starfsemi LSA sköpum. „Þetta er langstærsta fjáröflunin okkar og markmiðið með henni er einfaldlega að halda æfingagjöldum niðri,“ segir Steinunn. Um 50 krakkar æfa listskautaíþróttina hjá félaginu, sem þrátt fyrir smæð hefur náð eftirtektarverðum árangri á landsvísu. Þar má nefna Sædísi Hebu Guðmundsdóttur, sem var valin skautakona ársins af Skautasambandi Íslands á síðasta ári.á síðasta ári. Steinunn segir stuðning fyrirtækjanna í bænum ómetanlegan, enda tengist mörg þeirra fjölskyldum iðkenda beint. „Þetta er sannkallað hópverkefni sem hristir iðkendur betur saman og foreldra þeirra. Það er oft mjög skemmtileg stemming hér við pökkunarborðið og mikið keppnisskap í iðkendum að láta þetta ganga hratt og vel. Svo þarf að virkja foreldrana til þess að keyra nammið í fyrirtækin,“segir Steinunn að lokum og bendir á að áhugasöm fyrirtæki geta enn haft samband og pantað nammi til að styrkja starf Listskautadeildarinnar með því að senda póst á oskudagurlsa@gmail.com.