Minningarorð um Birgi Val Ágústsson
01.05.2026
Í dag var borinn til grafar Birgir Valur Ágústsson, heiðursfélagi í Skautafélagi Akureyrar. Biggi Ágústar var alla tíð mikill skautafélagsmaður og sérstakur áhugamaður um íshokkí. Hann var formaður félagsins á árunum 1970 – 1975 og lagði sitt lóð á vogarskálarnar við rekstur félagsins og uppbyggingu þess. Hann kom einnig að uppbyggingu skautasvæðisins að Krókeyri og tók virkan þátt í undirbúningi fyrir vélfrysta skautasvellið sem vígt var í janúar 1988, sem var stórt framfaraskref fyrir félagið. Sem athafnamaður í bænum studdi hann ásamt bræðrum sínum félagið af heilum hug, og þegar keppt var í Reykjavík fékk liðið oftar en ekki lánaða bíla til að komast á leikstað svo eitthvað sé nefnt. Einnig var fluttur inn íshokkíbúnaður og kylfur þegar slíkt var erfitt að komast yfir hér á landi og síðar sett upp verslun með skautabúnaði. Biggi keppti lengi í íshokkí með félaginu og hélt áfram að æfa langt fram eftir aldri, allt fram á sjötugsaldur. Á ísnum var hann kappsamur og það var sérstaklega ánægjulegt að spila með honum síðustu árin. Við minnumst hans á fjær bláu, kallandi á pökkinn með heldur frjálslega túlkun á rangstöðureglum. Enn þann dag í dag er talað um „að taka Bigga Ágústar á þetta“ þegar menn skila sér ekki í vörnina og bíða frammi. Í Bigga áttum við hauk í horni sem fylgdist ætíð vel með gengi félagsins og þegar maður rakst á hann á förnum vegi var íshokkíið alltaf til umræðu. Biggi var gerður að heiðursfélaga Skautafélags Akureyrar á 60 ára afmæli félagsins árið 1997. Að lokum vil ég fyrir hönd Skautafélags Akureyrar þakka fyrir ómetanlegt framlag til félagsins sem og félagsskapinn í ísnum, og sendi eftirlifandi eiginkonu hans, Ingunni Þóru Baldvinsdóttur, börnum þeirra, fjölskyldu og vinum, innilegar samúðarkveðjur.