Karfan er tóm.
Aðalfundur íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar fór fram í félagssal Skautahallarinnar á mánudagskvöld. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf, þar á meðal skýrsla stjórnar um starfsemi liðins vetrar, ársreikningar deildarinnar og kosning nýrrar stjórnar.
Í skýrslu stjórnar kom fram að veturinn hafi verið afar viðburðaríkur og árangursríkur. SA varð Íslandsmeistari í öllum unglingaflokkum félagsins U14, U16, U18 og U22. Alls voru tæplega 300 iðkendur undir 18 ára aldri sem æfðu hjá deildinni í vetur og hefur Sarah Smiley áfram stýrt öflugu yngriflokkastarfi félagsins. Starfsemi deildarinnar var fjölbreytt á árinu. Fyrir utan leiki og æfingar voru haldin fjölmörg mót, stór sem smá, auk æfingabúða, skólarútu, fræðslustarfs og margt fleira. Þjálfaraskipti urðu á miðju tímabili og samhliða þeim breytingum hefur deildin unnið að endurskipulagningu á innra starfi sínu með það að markmiði að mæta enn betur þörfum iðkenda, foreldra og þjálfara á komandi tímabili.
Foreldrafélag deildarinnar var öflugt að vanda og áfram einn af hornsteinum hins sterka barna- og unglingastarfs félagsins. Bæði íshokkíhreyfingin og félagið misstu fólk úr sínum röðum í vetur og reyndi þar mikið á styrk og samheldni samfélagsins. Mikilvægi heilbrigðisteymisins kom þá berlega í ljós en framlag þess til deildarinnar er ómetanlegt.
Á fundinum voru einnig kynntir ársreikningar deildarinnar. Rekstur ársins skilaði 6,8 milljóna króna hagnaði sem skapar mikilvægan grunn fyrir áframhaldandi þróun deildarinnar á komandi árum.
Kosið var í nýja stjórn deildarinnar. Ari Gunnar Óskarsson og Eiríkur Þórðarson gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og voru þeim færðar kærar þakkir fyrir mikilvægt framlag sitt til starfs deildarinnar. Ný inn í stjórn koma Jóhanna S. Ólafsdóttir og Ingi Snorri Barkarson. Stjórnin mun skipta með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi sínum.
Stjórn íshokkídeildar SA 2026–2027