Vorsýning Listhlaupadeildar á sunnudag

Vorsýning listhlaupadeildar verður haldin á sunnudag kl. 17:00. Þema sýningarinnar í ár er Íslenska söngvakeppnin - fyrr og nú. Láttu ekki þessa frábæru sýningu fram hjá þér fara, sjón er sögu ríkari.

Skautahlaupskynning á morgun

Skautasamband Íslands hefur hug á að koma á fót æfingum í skautahlaupi á stuttri braut - skautaati eða short track speed skating. Dagskráin hefst á Akureyri laugardaginn 23. apríl með fyrirlestri í fundarsal Skautahallarinnar kl. 14:30 þar sem íþróttin og umhverfi hennar verður kynnt áhugasömum íþróttafélögum ásamt stjórnendum íþróttamála og öðrum áhugasömum.

U18 landslið Íslands hefur leik á HM í dag

U18 ára landslið Íslands hefur leik í dag á heimsmeistaramótinu í íshokkí í 3. deild A sem fram fer í Istanbul í Tyrklandi. Fyrst i leikur liðsins er í dag kl. 13.30 en þá mætir liðið Belgíu en beina útsendingu má finna á youtube rás Tyrkneska Íshokkísambandsins.

SA Íslandsmeistarar kvenna 2022

SA tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í Hertz-deild kvenna á heimavellinum okkar í Skautahölllinni um helgina með 1-0 sigri á Fjölni í framlengingu í 3. leik úrslitakeppninnar. SA vann úrslitakeppnina 3-0 og var þetta 21. Íslandsmeistaratitill félagsins í kvennaflokki. Ragnhildur Kjartansdóttir skoraði sigurmarkið með frábæru upphlaupi í framlengingunni og Birta Björnsdóttir hélt markinu hreinu og varði 19 skot í leiknum.

Þriðji leikur á laugardag

3. leikur í úrslitakeppninni í Hertz-deild kvenna í íshokkí er á laugardag 9. apríl kl. 19:30 í Skautahöllinni. Staðan í einvíginu er 2-0 en þrjá sigra þarf til að tryggja sér íslandsmeistaratitilinn og getur SA því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri. Miðaverð er 1500 kr. en frítt inn fyrir 16 ára og yngri. Hægt er að tryggja sér miða í forsölu í Stubb. Við hvetjum fólk til þess að mæta í rauðu og litum þannig stúkuna í okkar lit.

Úrslitakeppnin í Hertz-deild kvenna

Fyrsti leikur í úrslitakeppninni í Hertz-deild kvenna í íshokkí hefst þriðjudaginn 5. apríl en þá taka SA stúlkur á móti Fjölni í Skautahöllinni á Akureyri kl. 19:30. SA eru deildarmeistarar og byrja því á heimavelli en vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitlinn í íshokkí. Miðaverð er 1500 kr. en frítt inn fyrir 16 ára og yngri. Hægt er að tryggja sér miða í forsölu í Stubb. Við hvetjum fólk til þess að mæta í rauðu og litum þannig stúkuna í okkar lit.