Úrslitakeppnin í Toppdeild karla hefst á þriðjudag í Laugardal
04.03.2026
Úrslitakeppnin í Toppdeild karla hefst næsta þriðjudag, 10. mars. Skautafélag Reykjavíkur er deildarmeistari eftir spennandi úrslitaviðureign í Laugardal um síðustu helgi þar sem báðir leikir fóru í framlengingu og SR vann þar í bæði skiptin og tryggðu sér heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni. Leikið verður svo til skiptis heima og að heimann þangað til annað liðið nær að vinna þrjá leiki og tryggja sér þannig Íslandsmeistaratitlinn í íshokkí.