29.06.2026
Skautafélag Akureyrar þakkar öllum börnunum og fjölskyldum þeirra fyrir komuna í leikjaskólann í júní. Báðar vikurnar seldust upp og það var frábært að sjá svona marga hressa krakka fylla Skautahöllina. Dagarnir einkenndust af leik, hreyfingu og alls konar skemmtilegum verkefnum. Það var mikið hlegið og umfram allt haft gaman saman.
Við hlökkum nú þegar til næsta leikjaskóla og óskum öllum gleðilegs sumars!
16.06.2026
Íshokkídeild Skautafélags Akureyrar hefur ráðið Emil Alengård sem yfirþjálfara meistaraflokka karla og kvenna ásamt U18 flokki félagsins fyrir tímabilið 2026–2027.
10.06.2026
Skautafélag Akureyrar hlaut í gær eina virtustu viðurkenningu sem veitt er fyrir barnastarf og þátttöku í íshokkí þegar félagið var útnefnt handhafi Kånken Youth Retention Award 2026 á verðlaunahátíð samtaka evrópskra íshokkífélaga (EHC) í Prag.
Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn European Hockey Awards þar sem saman komu fulltrúar fremstu íshokkífélaga Evrópu. Fyrir hönd SA tók íþróttastjóri félagsins, Sarah Smiley, við verðlaununum ásamt eiginmanni sínum Ingvari Jónssyni.