Hokkídeild SA með fullt hús titla

Uppskeruhátíð Hokkídeildar SA fór fram fyrir helgi þar sem tímabilið 2020/2021 var gert upp en það fer heldur betur í sögubækurnar sem eitt það allra besta hjá félaginu. Uppskera tímabilsins voru allir titlar sem í boði voru; Íslandsmeistaratitlar í meistaraflokkum karla og kvenna, U18, U16, U14 a- og b-liða ásamt báðum deildarmeistaratitlunum í meistaraflokkunum. Afrekið er algjörlega einstakt og allir leikmenn liðanna sem unnu titlana eru uppaldir í félaginu sem og Rúnar Freyr Rúnarsson aðalþjálfari liðanna.

Vorsýning listhlaupadeildar á sunnudag

Vorsýning listhlaupadeildar verður haldin á sunnudag kl. 13:00. Þema sýningarinnar í ár er Gullmolar úr Fortíðinni. Láttu ekki þessa frábæru sýningu fram hjá þér fara, sjón er sögu ríkari.

SA Íslandsmeistarar í U14

SA varð um helgina Íslandsmeistari U14 A- og B- liða þegar liðin tryggðu sér bæði sigur í síðasta helgarmóti tímabilsins sem fram fór í Skautahöllinni á Akureyri. Bæði lið unnu mótin sín með fullt hús stiga eða 27 stig úr 9 leikjum. Við óskum þeim öllum til hamingju með Íslandsmeistaratitlana.

Sami Lehtinen ráðinn þjálfari SA á nýjan leik

Sami Lehtinen hefur verið ráðinn til hokkídeildar SA til ársins 2022 og tekur aftur við stöðu yfirþjálfara og þróunarstjóra hjá félaginu. Sami sem var yfirþjálfari hjá félaginu tímabilið 2019/2020 var aðstoðarþjálfari hjá HIFK í Finnlandi í vetur sem vann bronsverðlaun í finnsku úrvalssdeildinni nú á dögunum.

SA Íslandsmeistarar U18

SA U18 vann báða leiki sína gegn SR um helgina og tryggði sér þannig Íslandsmeistaratitilinn í U18. Leikirnir voru æsispennandi en unnust báðir að lokum með tveimur mörkum, 4-2 á föstudag og 5-3 á laugardag. SA liðið náði því 21 stigi en SR var í öðru sæti með 12 stig. Glæsilegur árangur hjá frábæru þessum flotta hópi. Við óskum þeim öllum til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn.

Skautafélag Akureyrar fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Skautafélag Akureyrar og allar deildir innan þess fengu afhent viðurkenningarskjöl vegna endurnýjun fyrirmyndarfélags ÍSÍ á aðalfundi félagsins sem fór fram síðastliðinn miðvikudag. Formaður Skautafélagsins ásamt formönnum og fulltrúum deilda tóku á móti skjölunum á úr hendi Viðars Sigurjónssonar umsjónarmanni verkefnisins.

Leikjanámskeið SA í sumar

Skauta- og íshokkí leikjanámskeið SA fyrir 6-10 ára verður haldið daganna 9-18 júní. Frábært tækifæri fyrir bæði byrjendur sem og iðkenndur til þess að skemta sér í leikjum og fá skautakennslu í leiðinni.

SA Íslandsmeistarar U16

SA tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í U16 um síðustu helgi. SA liðið vann alla 8 leiki sína á tímabilinu. Uni Steinn Sigurðarson fyrirliði SA var bæði stiga- og markahæsti leikmaður deildarkeppninnar en hann var með 22 mörk og 38 stig í 8 leikjum. Glæsilegur árangur hjá frábæru liði og við óskum þeim öllum til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn og þennan flotta árangur.

Aðalfundur Skautafélags Akureyrar 12. maí

Boðað er til aðalfundar Skautafélags Akureyrar miðvikudaginn 12. maí kl. 20.00 í fundarherbergi Skautahallarinnar. Venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins.

Aðalfundur Listhlaupadeildar

Aðalfundur Listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar/LSA 2021 Verður haldinn þriðjudaginn 11. maí nk. kl. 20.00 í fundarherbergi skautahallarinnar.