SA Íslandsmeistarar kvenna 2022

SA tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn  í Hertz-deild kvenna á heimavellinum okkar í Skautahölllinni um helgina með 1-0 sigri á Fjölni í framlengingu í 3. leik úrslitakeppninnar. SA vann úrslitakeppnina 3-0 og var þetta 21. Íslandsmeistaratitill félagsins í kvennaflokki. Ragnhildur Kjartansdóttir skoraði sigurmarkið með frábæru upphlaupi í framlengingunni og Birta Björnsdóttir hélt markinu hreinu og varði 19 skot í leiknum.

Á þriðja hundrað manns voru mættir í stúkuna í þennan þriðja leik úrslitakeppninnar. Fyrsti leikhlutinn var leikinn nokkuð varfærnislega af báðum liðum þar sem varnarleikurinn var í fyrirrúmi og liðin gáfu fá færi á sér. Það breyttist í annarri lotunni þar sem SA náði meira valdi á leiknum en báðum liðum tókst að skapa sér úrvals marktækifæri en markverðirnir voru heitir og sýndu frábæra takta. Þriðja lotan var æsispennandi þar sem bæði lið lögðu allt kapp á að skora og fengu fjölmörg frábær færi en hvorugu liðinu tókst að skora og fór leikurinn í framlengingu. SA fékk frábært færi í fyrstu skiptingu framlengingunnar og svo Fjölnir strax í kjölfarið í hinum endanum en markverðirnir voru áfram í lykilhlutverki í leiknum. Á annarri mínútu framlengingunnar vann fyrirliði SA Ragnhildur Kjartansdóttir pökkinn við sína eigin bláu línu og fór rakleiðis að marki Fjölnis og fór fram hjá síðasta varnarmanni Fjölnir áður en hún setti pökkinn örugglega upp í þaknetið og tryggði SA sigur í leiknum við mikinn fögnuð stúkunnar og SA Íslandsmeistari kvenna í 21. sinn. Jónína Guðbjartsdóttir vann sinn 20 Íslandsmeistaratitill með SA en hún hefur spilað með SA frá upphafi deildarkeppninnar.

SA eru vel að titlinum komnar og sýndu frábæran karakter fyrst með að tryggja sér heimaleikjaréttinn í síðasta leik deildarkeppninnar á útivelli og vinna svo þrjá frábæra sigra úr mjög jöfnum leikjum í úrslitakeppninni.