Karfan er tóm.
Í júní býður SA upp á skauta- og íshokkí leikjanámskeið fyrir öll börn fædd 2020–2016. Námskeiðin fer fram dagana 15.–19. og 22.-26. júní.
Þetta er frábært tækifæri fyrir bæði byrjendur og iðkendur til að skemmta sér í leikjum, prófa skauta og fá skautakennslu í leiðinni.
Leikjanámskeiðið fer fram bæði á útisvæðinu við Skautahöllina og inni á skautasvellinu. Hægt er að velja á milli þess að vera í listskautum eða í fullum íshokkíbúnaði í leikjunum á námskeiðinu.
15.-19. júní, 10.500 kr (8:15-12:15) (17.júní er frídagur)
22.-26. júní, 13.000 kr (8:15-12:15)
Allur búnaður er innifalinn og engin reynsla á skautum er nauðsynleg.
Sarah Smiley hefur yfirumsjón með námskeiðinu.
Nánari upplýsingar: hockeysmiley@gmail.com
Skráning:
https://www.abler.io/shop/sa/almennt