Úthlutað úr minningarsjóði Evu Bjargar Halldórsdóttur

Vilborg Þórarinsdóttir, Ylfa Rún Guðmundsdóttir og Petchohomboo Jonsson.
Vilborg Þórarinsdóttir, Ylfa Rún Guðmundsdóttir og Petchohomboo Jonsson.

Þann 26. apríl síðastliðin var úthlutað styrkjum úr Minningarsjóði Evu Bjargar Halldórsdóttur, fyrrum skautara og þjálfara hjá LSA, í annað sinn.
Í ár voru þær Ylfa Rún Guðmundsdóttir og Petchohomboo Jonsson valdar úr hópi iðkenda fyrir framfarir og iðni á liðnu tímabili.
Við óskum stelpunum innilega til hamingju og vonum að styrkirnir verði þeim að gagni í íþróttinni🫶⛸️🫶