Karfan er tóm.
U18 drengjalandslið Íslands vann til silfurverðlauna á Heimsmeistaramótinu í 3. deild B sem fram fór í Sarajevó í Bosníu-Hersegóvínu í liðinni viku. Ísland lék til úrslita á mótinu þar sem liðið mætti sterku liði Taílands en tapaði leiknum naumlega í framlengingu eftir jafnan og spennandi leik.
Strákarnir sýndu mikinn karakter, samheldni og aga í leik sínum og voru heilt yfir eitt sterkasta lið mótsins. Það vantaði í raun aðeins herslumuninn til að tryggja sér gullið en Taíland tryggði sér að lokum sigurinn og sæti í næstu deild. Ljóst er að þessi hópur hefur gæði, metnað og liðsheild til að ná langt og margir þeirra eiga eftir að verða burðarásar í íslensku íshokkí á komandi árum.
Heimferð liðsins reyndist jafnframt óvenju krefjandi þegar flugi var aflýst með stuttum fyrirvara og leikmenn og þjálfarar þurftu að ferðast heim í fjórum mismunandi hópum. Líkt og á ísnum sýndi hópurinn þó seiglu og samstöðu við þær aðstæður og kláraði ferðalagið af fagmennsku.
Skautafélag Akureyrar er afar stolt af sínum fulltrúum og óskar leikmönnum og þjálfurum til hamingju með frammistöðuna. Þessi reynsla mun nýtast hópnum vel og leggja grunn að enn meiri árangri á komandi árum.