21.01.2009
Nú hefjast aftur morguntímar á fimmtudagsmorgnum. Í fyrramálið, fimmtudagsmorguninn 22. janúar skulu þeir sem keppa í eftirfarandi keppnisflokkum mæta í morguntíma milli 6:15 og 7:15: Novice, 15 ára og eldri B, 12 ára og yngri A og 10 ára og yngri A. Næsta fimmtudag mæta svo 14 ára og yngri B, 12 ára og yngri B, 10 ára og yngri B og 8 ára og yngri B.
18.01.2009
Björninn lagði SA aftur nú áðan í seinni leiknum þessa helgi 4 - 1. 4.fl. vann báða sína leiki í dag, 5.fl.B vann líka báða sína leiki og 5.fl.A gerði eitt jafntefli og tapaði einum.
17.01.2009
leik Bjarnarins og SA í 2.fl. fyrr í kvöld lauk með sigri Barnarmanna 3 - 2
16.01.2009
Þegar Sarah fór til Kanada um jólin fór hún í útvarpsviðtal.
Hér er hægt að hlusta á það.
http://podcast.cbc.ca/mp3/insidetrack_20090111_10736.mp3
15.01.2009
Mæting í Skautahöll kl. 12,30 og brottför kl. 13,00
14.01.2009
Vegna Reykjavík International um helgina verða breyttar æfingar. Bæði eru margir iðkendur að keppa á þessum móti og Helga þjálfari með þeim. Undir "lesa meira" má finna tímatöflu þessara daga.
14.01.2009
Keppendur á Rig (Reykjavík International) fá æfingu í skautahöllinni í Laugardal milli 09:00-10:00 á föstudagsmorgun. Þeir sem verða komnir suður á þessum tíma skulu endilega nýta sér æfingatímann. Mæting kl. 08:30, hitið upp og Helga þjálfari hittir ykkur síðan rétt fyrir 9. Látið Helgu þjálfara vita með smsi hvort þið komið eða ekki (8214258)
13.01.2009
Á morgun miðvikudaginn 14. janúar skulu þeir sem keppa á Reykjavík International mæta á 6. hóps ístímanum milli 18.10 og 19:05. Aðrir iðkendur mæta á sínum vanalega tíma (þeir sem hafa verið að æfa með 6. hóp en munu ekki keppa geta valið milli þess að skauta með 5. eða 7. hóp þennan dag).