Karfan er tóm.
Nú þegar vetrarstarfið er að hefjast er tilvalið að minna á að ég er með í umboðssölu MONDOR skautavörur frá Everest. S.s. sokkabuxur, flísbuxur, skautahlífar o.fl.
Endilega hafið samband í síma 662 5260 eða rakelhb@simnet.is
Kveðja, Rakel Bragadóttir.
Kæru foreldrar og iðkendur,
Æfingar byrja þriðjudaginn næsta þ.e. 23. ágúst. Haft verður samband við þá iðkendur sem munu æfa með eldri eða yngri flokki en sínum eigin og einnig þá sem æfa með fleiri en einum flokki í næstu viku varðandi þá tímatöflu sem þeir munu fylgja. Af-ís tímar munu byrja í september eftir að búið verður að ráða aðstoðarþjálfara. Ef þið hafið einhverjar spurningar vinsamlegast hafið samband við Söru á hockeysmiley@gmail.com. Smelltu á “lesa meira” til að sjá flokkaskiptingar og æfingatíma.
Mótafyrirkomulag í meistaraflokki karla liggur nú fyrir en það er ánægjulegt frá því að segja að þessu sinni munu fimm lið taka þátt í Íslandsmótinu. Við munum líkt og í fyrra tefla fram bæði Víkingum og Jötnum og Björninn mun einnig tefla fram tveimur liðum og SR einu liði. Spilaðar verða 4 umferðir fyrir utan úrslitakeppni og líkt og á síðasta tímabili verða einhverjar tilfærslur á milli liða leyfilegar en endaleg útfærsla á því liggur ekki enn fyrir, a.m.k. ríkir mikil þögn á heimasíðu Íshokkísambandsins um málið enda ekki verði sett inn frétt þar síðan í maí.
Hér eru drög að tímatöflu LSA haustönn 2011. Æfingar samkvæmt tímatöflu hefjast sunnudaginn 21 ágúst. Búið er að breyta nöfnum á hópunum, A hópur sem var í fyrra er nú hópur 1 samkvæmt timatöflunni, B hópur er 2, C hópur er 3, hópur 4 eru skautarar sem eru að draga sig úr keppni en vilja halda áfram að skauta. Betri útfærsla/skýring á nöfnum hópanna kemur síðar.
Hér má sjá drög að hópaskiptingu en endanleg hópaskipting verður klár eftir 1 -2 vikur.