SA Víkingar - Fjölnir í Hertz-deildinni laugardag kl. 17:45

SA Víkingar taka á móti Fjölni í Hertz-deildinni á laugardag - kl. 17:45 í Skautahöllinni Akureyri. Húsið opnar kl. 17:15 - við biðjum fólk um að sýna þolinmæði í afgreiðslu þar sem skrá þarf alla í sæti á leiðinni inn. Ath. að einungis er hægt að taka við ákveðnum fjölda áhorfenda og miðasölu á staðnum verður því hætt um leið og þeim fjölda er náð. Miðaverð er 1000 kr. fyrir 16 ára og eldri. Mætum í rauðu og styðjum okkar lið til sigurs. Það er grímuskyldu í stúku!

Íslandsmótið í krullu 2021

Íslandsmótið í Krullu hefst mánudaginn 15.mars.

Akureyrarmót í Krullu

IceHunt eru Akureyrarmeistrar

SA deildarmeistarar í Hertz-deild kvenna

Kvennalið SA tryggði sér deildarmeistaratitilinn í Hertz-deildinni nú um helgina þegar liðið lagið SR tvívegis að velli í Laugardalnum. SA vann leikina nokkuð sannfærandi 12-0 þann fyrri og 9-0 þann seinni. Liðið tryggði sér einnig heimaleikjaréttinn í úrslitakepninni sem leikinn verður í maí. SA hefur farið taplaust í gegnum tímabilið það sem af er og unnið alla 7 leiki sína. Við óskum liðinu okkar til hamingju með deildarmeistaratitilinn.

Akureyrarmót í Krullu

Mótið klárast í kvöld

SA Víkingar með tap gegn Fjölni í kvöld

SA Víkingar töpuðu fyrir Fjölni í seinni leik tvíhöfða-helgar í Hertz-deild karla í kvöld – lokatölur 2-4. Fyrsta tap SA Víkinga á tímabilinu staðreynd og liðin skilja því jöfn eftir helgina en SA Víkingar eru en á toppi deildarinnar með 18 stig og Fjölnir í öðru sæti með 9 stig og einn leik til góða á Víkinga.

SA Víkingar stórgóðir í fyrri leik tvíhöfðans gegn Fjölni

SA Víkingar unnu stórsigur, 8-2 á Fjölni í Hertz-deild karla í kvöld. Leikurinn var fyrri leikur tvíhöfða-helgar en SA Víkingar taka aftur á móti Fjölni annað kvöld í Skautahöllinni á Akureyri. Alex Máni Sveinsson átti flottann leik og skoraði þrennu í leiknum.

SA Víkingar - Fjölnir föstudagskvöld kl. 19:30 - með áhorfendum!

SA Víkingar taka á móti Fjölni á föstudagskvöld kl. 19:30 í Skautahöllinni á Akureyri. SA Víkingar hafa spilar reglulega vel það sem af er tímabili og eru efstir í Hertz-deildinni með fimm sigra úr jafn mörgum leikjum. Búið að aflétta áhorfendabanni og getum við tekið við um 100 áhorfendum fæddum fyrir 2005

Akureyrarmót í Krullu

Önnur umferð Akureyrarmótsins verður í kvöld

Akureyrarmót í Krullu

Akureyrarmótið hefst í kvöld.