SKAUTABUXUR
Skautabuxurnar eru ekki komnar vegna einhverra tafa í útlöndum, en ég er í sambandi og læt vita um leið og þær koma.
kv. Allý / allyha@simnet.is - 8955804
Skautabuxurnar eru ekki komnar vegna einhverra tafa í útlöndum, en ég er í sambandi og læt vita um leið og þær koma.
kv. Allý / allyha@simnet.is - 8955804
Laugardaginn 5 sept. verður meistaraflokkur og 2 flokkur saman á æfingu kl 17:00.
Á Mánudaginn verður meistaraflokkur kl 19:00.
Á Þriðjudaginn verða svo meistaraflokkur og 2 flokkur saman á æfingu.
Kveðja
Josh.
Nú er í gangi mikið átak í kynningu Íshokkí íþróttarinnar á landsvísu og af því tilefni er haldinn HOKKÍDAGURINN MIKLI samtímis í öllum skautahöllum landsins. Sjá nánar á vef ÍHÍ með því að smella hér. Við hvetjum alla áhugasama til að mæta og prófa.
Laugardaginn 19. september kl. 11-13 verður markaðsdagur hjá foreldrafélagi LSA. Þar verður hægt að kaupa skautabúnað - bæði notaðan og nýjan. Tekið verður á móti notuðum búnaði um leið og skráning fer fram þ.e miðvikudaginn 16. september (tímasetning verður nánar auglýst síðar). Munið að verðmerkja búnaðin sem og skila inn blaði með upplýsingum um seljanda þ.e nafn, símanúmer og verð á búnaði.
Nánar verður auglýst síðar um þau fyrirtæki og einstaklinga sem ætla að vera með varning á markaðsdeginum
Við hvetjum alla til að taka þátt í þessu með okkur og hlökkum til að sjá ykkur
Hér má sjá æfingagjöld haustannar 2009. Hægt verður að skipta greiðslum í þrennt. Í fyrra var gerð tilraun með að hafa keppnisgjöld innifalin í æfingagjöldum og virtist fólk almennt ekki kjósa að hafa þann máta á - þannig að í ár eru keppnisgjöldin ekki innifalin í æfingagjöldum, heldur verða innheimt ca. mánuði fyrir hvert mót. Æfingagjöld vorannar ættu að verða sambærileg við haustönnina. Hafið samband í netfangið skautar@gmail.com ef einhverjar spurningar vakna.
Kvennaflokksæfingin sem átti að vera í kvöld fellur niður og verður í staðin á laugadaginn kl 17:15.
Old boys verða klukkan 20.10 í kvöld!!!
Skyldumæting á æfingu í kvöld hvort sem þú kemst á ís eða ekki!!! Ísæfing hefst stundvíslega kl 21:00 Sjáumst Josh
Skautabuxur eru væntanlegar til landsins í byrjun september. Þeir sem ætla að fá skautabuxur þá eru beðnir að senda mér pöntun á maili.
Allý / allyha@simnet.is,