Mót fyrir A og B keppendur á listskautum og bakstur

Kæru foreldrar og forráðamenn keppenda í A og B keppnisflokkum!!

Nú er komið að fyrsta móti vetrarins en það verður haldið 27. september og er innanfélagsmót LSA fyrir A og B keppendur félagsins. Þar sem foreldrafélagið hefur staðið að bakstri og sölu bæði veitinga og smávarnings vantar okkur aðstoð ykkar, en hún felur í sér bakstur fyrir mótið.

Einnig er fyrirhugað að halda helgina á eftir þ.e 2 -4. október mót fyrir A og B keppendur á vegum ÍSS og þá munu Björninn og SR einnig koma norður og keppa. Okkur vantar þá aðstoð aftur í tengslum við baksturinn.

Peningar sem safnast á þessum mótum eru svo notaðir til að greiða niður kostnað þegar okkar keppendur fara suður.

Endilega hafið samband með email (villaerla@hotmail.com) eða í síma 696-7344.

Allt bakkelsi er vel þegið - vinsælt hefur verið að baka pönnukökur, skúffuköku, möffins og snúða eða horn

F.h Foreldrafélags LSA - Vilborg Sveinbjörnsdóttir

1. leikur Mogginn fyrstur með fréttirnar (O:

Gaman að sjá svona fréttir á moggavefnum/íþróttir, smella hér.

Breytingar á æfingum á morgun

Opinn tími og basic test tími falla niður - sem og afístíminn kl:11 - þar sem Helga er fjarverandi. Hins vegar verða aðrar æfingar á hefðbundnum tímum.

Stutt spjall um íshokkí og leikinn á N4 í dag kl 18:15.

Tveir gullfallegir leikmenn úr meistaraflokki S.A. fyrirliðinn Jón Benedikt Gíslason og aðstoðarfyrirliðinn Björn Már Jakobsson verða í spjalli hjá Hildi Jönu á N4 í kvöld kl 18:15.

Þátturinn er svo endurtekinn á klukktímafresti þangað til á sunnudaginn.

MEISTARAFLOKKSMENN ATHUGIÐ!!!!!

TEAM BREAKFAST AT HÓTEL KEA TOMORROW. BE OUTSIDE AT THE HOTEL 09:30. BRING 1000 KR.

EXSPECT  TO SEE EVERYONE THERE

COACH JOSH.

Henson gallar

Hægt er að panta Henson galla hjá mér næstu daga. Peysan er dökkrauð með svörtu og buxurnar svartar með rauðu (mjög flottir gallar).

Lógó skautafélagsins verður peysunni eins nafn iðkenda.

Verð: 6000-6500

Einnig er hægt að fá bara peysuna og sleppa buxunum fyrir þá sem vilja --- ekki komið verð á hana ennþá

Vinsamlegast sendið póst á netfangið josasigmars@gmail.com, með upplýsingum um nafn og símanúmer þess sem pantar, stærð á galla/peysu og nafni iðkenda.

kv Jóhanna

Vegna móts hjá A og B keppendum 27.september.

Vil minna foreldra á að það er síðasti dagur í dag 18.september til að greiða staðfestingargjald vegna mótsins sem haldið verður hjá A og B keppendum 27.september n.k. og muna að senda staðfestingu með nafni keppenda á póstfangið didda@samvirkni.is

Reikningsnúmer:1145-26-003770-5102003060. Kr.2000,-

 

Markaðsdagur

Munið markaðsdaginn, laugardaginn 19/9 2009 frá klukkan 11-13 í skautahöllinni. Notað og nýtt frá Arena, Everest og Kristín Þöll í Saumakompunni - alls kyns varningur á góðu verði.

Endilega kíkið við og nýtið ykkur úrvalið

Foreldraráð LSA

Ice Cup 2010

Ákveðið hefur verið að halda Ice Cup dagana 29. apríl til 1. maí 2010.

SKAUTABUXUR

Skautabuxurnar eru loksins komnar í hús, þær sem vilja fá buxur og eru ekki búnar að panta þær endilega sendið mér SMS ég er í R.vík og ætlunin er að koma með þær heim um helgina. Ég er ekki búin að fá verð á þær en þær hækka eitthvað.

 

kv. Allý  8955804