Karfan er tóm.
Æfingar C-hópa samkvæmt tímatöflu nema næstu tvo laugardaga 16 og 23 okt mætir C2 kl:10.40 og C1 kl: 11.00. Næsta þrijudag 19 okt er morgunæfing hjá C1 og C2 kl: 06.15-07.30.
Breytingarnar hjá A hóp er:
Fimmtudagana 14 og 21 okt ís kl: 15.10-16.00, afís 16:10-17.30
Laugardagana 16 og 23 okt 10.00-11.05 afís (varanleg breyting í tímatöflu)
Sunnudagana 17 og 24 okt 17.15-18.55 ís
Þriðjudaga 16.00-17.30 afís, Laugargata (varanleg breyting)
Víkingar og Ynjur héldu til Egilshallar á laugardaginn og áttu þar misjöfnu gengi að fagna. Víkingar byrjuðu á að leggja Björninn með 5 mörkum gegn 3. Sá leikur var nokkuð skemmtilegur, jafn framan af og hraður þó ekki hafi hann verið mjög áferðar fallegur. Andrarnir Már og Freyr komu Víkingum fljótlega í 2 - 0 en Matthías Sigurðsson minkaði muninn fyrir lok lotunnar. Bjarnarmenn bættu svo við tveimur mörkum til viðbótar í 2. lotu og höfðu þar með breytt stöðu sinni frá því að vera tveimur mörkum undir yfir í eins marks forystu, 3 - 2.
Helgin verður fjörleg að vanda og mikið verður um að vera hjá leikmönnum Skautafélags Akureyrar. Á heimavígstöðvunum verður líflegt því fyrsta umferð Íslandsmóts 3.flokks verður á Akureyri. Helmingur meistaraflokkanna verður svo á faraldsfæti því Víkingar og Ynjur munu halda suður yfir heiðar og etja kappi við Bjarnarfólkið. Karlpeningurinn ríður á vaðið og hefst leikurinn kl. 16:30 og stelpurnar svo strax á eftir. Víkingar og Björninn mættust fyrir tveimur vikum og lauk með sigri okkar en þeir síðarnefndu hafa síðan unnið Jötna og tapað fyrir SR.
Ynjurnar eru að spila sinn fyrsta leik í vetur og það verður því forvitnlegt að fylgjast með þeim leik. Ynjurnar komu á óvart í fyrra og náðu að stela nokkrum stigum af hinum liðunum. Gera má ráð fyrir því að liðið hafi styrkst á milli ára, ungu stelpurnar eru nú reynslunni ríkar og árinu eldri.
Var að fá mjúkar skautahlífar sem gott er að hafa á skautunum í skautatöskunum. Var líka að fá svörtu flís skautabuxurnar sem koma niður fyrir skautann í stærðum 6-8, 8-10, 10-12 og 12-14. MINNI á skautatöskurnar sem eru með sér hólfi fyrir skautana.
Endilega hringið, sendið SMS eða mail og komið svo og skoðið - mátið.
Allý - 8955804 / allyha@simnet.is