Karfan er tóm.
!!Nú vænkast hagur Strympu!!
Nýr leikmaður frá Slóvakíu, Lubomir Bobik er um það bil að bætast við mfl.SA honum til eflingar og stuðnings og vonum við að þetta verði til þess að SA menn finni aftur leiðina að Íslandsmeistaratitlinum ( ekki það að nokkurntíma hafi staðið til að gefa hann eftir ) ((0;
Iðkendur munið að skrá ykkur þið sem eruð ekki búin að því. Tengill til skráningar hér neðst í valmyndinni vinstramegin. Skráningar-Kveðja Hokkí-Stjórnin
Síðustu leikir 1. umferðar mfl.kk. verða spilaðir á laugardaginn næsta í Skautahöllinni á Akureyri.
Narfi / Björninn kl. 17 og svo SA / SR kl. 20
Lesendur góðir fáið nú alla sem í kringum ykkur eru til að mæta og hvetja heimaliðin, þeim veitir sannanlega ekki af stuðningnum. Áfram SA
ps. SA leikurinn verður tekinn upp fyrir fréttir og íþróttaþátt sjónvarps, kanski kemst þitt andlit í sjónvarpið á sunnudeginum !!!!!!!!!!!!!
Kæru foreldrar iðkenda í listhlaupadeild
Vinsamlegast athugið að neyðarnúmer sem gefinn eru upp við skráningu séu rétt og í notkun!!!!
Kveðja Stjórnin:)
Mfl.kk. 27. sept 2005 Björninn - SR kl. 19:30 - upphitun 18:50
2. fl.kk. 29. sept 2005 SR - Björninn kl. 19:00 - upphitun 18:50 (?)
Mfl.kk. 01. okt 2005 Narfi-Björninn kl. 17:00 - upphitun 16:20
Mfl.kk. 01. okt 2005 SA-SR kl. 20:00 -
upphitun á rough ice að fyrri leik loknum
Í tilefni af því að undirritaður hefur verið skammaður í spjallinu hér á síðunni fyrir að hafa ekki notað fleiri og meiri orð til að lýsa leikjum liðsins hér í fréttahlutanum vil ég bara segja að þó mér sé margt til lista lagt þá er lýsing leikja ekki eitt af því og auglýsi því hér með eftir aðila til að senda mér umsögn um leiki félagsins á frettir@sasport.is og mun ég þá setja það hér inn. Og í framhaldi af þessu ætla ég að benda ykkur lesendur góðir á að kíkja á spjallið, þar var ég að senda inn þetta svar við einum þræðinum.