Karfan er tóm.
Eftir margra ára baráttu hefur Skautafélag Akureyrar loks eignast nýja fullkomna skerpingavél. Vélin er af gerðinni Blademaster og gjörbreytir aðstöðu til skautaskerpinga á Akureyri. Það var Vetraríþróttamiðstöð Íslands sem veitti rausnarlegan styrk til kaupanna.
Til hamingju með þennan áfanga, Skautafélagsmenn.
Eins og áður hefur komið fram verður skráningardagur laugardaginn 19. ágúst milli 11 og 13. Þar fá iðkendir að vita í hvaða flokki þeir munu æfa í vetur og prófa svellið. Þessi flokkaskipting er þó ekki endanleg og getur komið til þess að einhverjar breytingar verði og biðjum við alla iðkendur og foreldra að hafa það í huga og virða. Við munum fá til okkar nýjan þjálfara frá Kanada sem heitir Hanna Burnett. Hún kemur til landsins í september og tekur hún við þjálfun hjá eldri flokkum.
Þeir iðkendur sem verða að æfa með M hópi, 5. hópi, 4. hópi, 3. hópi og U hópi byrja æfingar 20. ágúst en aðrir flokkar byrja þann 4. september skv. tímatöflu sem birt verður á næstu dögum.
Hér er tímatafla fyrir æfingarnar 20. ágúst til 4. september.
Heyrst hefur að hallarmeistarinn Viddi ætli sér að kveikja á frystivélunum í dag, og ís verði kominn eftir viku!! Fyrir þá allra hörðustu er jafnvel hægt að komast fyrr á skauta, með því að rétta fram hjálparhönd í komandi viku. Lengi lifi Skautahöllin. HÚRRA HÚRRA HÚRRA!!!!
Eitthvað hefur verið um breytingar í íslensku íshokkí í ár. Unglingadeild hefur verið stofnuð og breyting hefur orðið á úrslitarkeppni, sem og á útbúnaði fyrir markmenn. Best er að lesa um þetta á ihi.is
Þriðjudaginn 15. ágúst kl. 17 í Skautahöllinni verður hægt að fá aðstoð við skauta- og blaðapöntun fyrir iðkendur sem æfðu með 3, 2, 1. og M flokki síðasta skautatímabil. Þeir sem misstu af pöntunardeginum í vor hafa því annað tækifæri til að fá aðstoð, þetta er síðasti séns fyrir þá sem ekki eiga skauta eða blöð fyrir næsta tímabil!
Skráning fyrir næsta tímabil verður auglýst bráðlega og er áætlunin að hefja æfingar í 3. viku ágústmánaðar.
Við hlökkum til að sjá alla aftur!