Pedromyndir.is

Á vefnum Pedromyndir.is má sjá myndir frá jólasýningu eldri iðkenda sem fram fór um helgina. Á ljósmyndavef Pedro mynda má sjá margar flottar myndir. Sem síðan er hægt að panta hjá Pedro sjálfum :-)

 Gleðileg jól

Hokkí-Deildin Óskar Öllum Gleðilegra Jóla

Gleðileg Jól allir og hittumst hress á nýju ári

EDEA skautar og kjóll til sölu

Hef til sölu lítið notaða EDEA skauta í tösku nr. 240 og mjög fallegan skautakjól (hvítur og blár) nr. 12.
Elín Margrét Hallgrímsdóttir sími 895-2226, netfang emh@unak.is.“

Frábær jólahátíð að baki!

Í gær var jólahátíð Listhlaupadeildar og gekk sýningin vonum framar. Yngri iðkendurnir slóu í gegn í framsetningu sinni á "Þegar Trölli stal jólunum", ýmist í líki Trölla, snjókorna, Trölla að leika jólasvein, kátra barna sem hlakkar til jólana eða hreindýr. Jólaball á ís var haldið á eftir sýningunni, þar sem tveir sveinar af fjöllum kíktu í heimsókn og gáfu börnunum klementínur til að fá þau í sannkallað jólaskap.

 Seinni sýningin var ekki síðri, en þar komu fram eldri skautarar og stóðu sig alveg frábærlega í sinni túlkun á ýmsu tengt jólunum. Án þess að gera lítið úr hæfileikum annarra skautara, þá verður að segjast að við í stjórninni höfum staðið uppúr með snilldar skauta takta sem seint gleymast í okkar atriði, þar sem við túlkuðum húsmæður að elta jólakalkúninn með stórkostlegri innlifun! :-)

Ég vil fyrir hönd deildarinnar óska öllum gleðilegra jóla og þakka fyrir allt gamalt og gott

Hilda Jana formaður

Upplýsingar til allra iðkenda vegna Jólahátíðar 2008

Jólahátíð listhlaupadeildar 2008 - Sunnudaginn 21. desember 2008

Generalprufa eldri iðkenda

Á morgun sunnudaginn 21. desember verður generalprufa fyrir 4. 5. 6. og 7. hóp milli ca. 9 og 10:30. Mæting ekki seinna en kl. 8:45. Allir klefar nema meistaraflokksklefi verða notaðir, reynið að dreifa ykkur þannig að allir hafi nóg pláss :)

Jólafrí

Krullufólk komið í jólafrí.

Íshokkímaður ársins 2008

Stjórn Íshokkísamband Íslands kom saman þ. 16. desember og valdi íshokkífólk ársins í karla- og kvennaflokki. Sjá: http://ihi.is/?webID=1&i=2&a=read_artical&id=2469

töskur til sölu

Eigum 3 skautatöskur til sölu. 1 blá einlit, 1 blá m/blómamunstri og 1 blá með indiánamunstri. Tilvalin jólagjöf. Töskurnar verða til sýnis og sölu í Skautahöllinni á morgun föstudag meðan æfingar eru hjá 2 hóp. Þetta eru eina sendingin sem við fáum í bili.

Einstaklingsmótinu lokið

Einstaklingsmótinu lauk í kvöld, úrslitin réðust á steinum. Kristján Bjarnason sigurvegari.