Breittur æfingastaður og tími

Á sunnudaginn 2. apríl verða æfingar 4., 5., 6. og 7. flokks í íþróttasal Síðuskóla og allir mæta kl. 11,00 og eru til 12,30.  Farið verður í bandí og fleira skemmtilegt. áður var sagt oddeyrarskóla en sá salur var upptekinn og er beðist velvirðingar á því.   kveðja........stjórnin

LANDSLEIKUR Í KVÖLD!!

ÍSLAND - WINNIPEG FALCONS !!!!

kl. 18:00 í Skautahöllinni

Audrey lauk keppni í stutta prógrammi í dag!

Audrey Freyja lauk keppni í stutta prógrammi í Junior flokki í dag og gekk mjög vel.  Hún var fyrst á ísinn sem er alltaf smá pressa, en hún gerði vel og gerði engin stór mistök!  Hún var 19. af 20 keppendum og er það frábær árangur!!  Hún keppir svo á morgun með frjálsa prógrammið. 

SA - Winnipeg Falcons

Leikur nr. 2 kl. 10,00 á sunnudagsmorgun 2. apríl

Guðný lauk keppni í morgun!

Guðný Ósk lauk keppni fyrir stuttu.  Hún keppti með frjálsa prógrammið og stóð sig vel.  Hún lenti öll stökkin sín og skautaði vel.  Hún keppti í Novice B og var keppnin hörð.  Hún varð númer 10 af 10 skauturum, en jafnframt góður árangur!

S.A:-Fálkarnir

Í gærkvöldi áttust við Skautafélag Akureyrar og Fálkarnir frá Winnipeg í Skauthöllinni á Akureyri. Leiknum lauk með 0-4 sigri Fálkanna.

Fyrsti keppnisdagur!

Nú er fyrsti keppnisdagur á Hans Lindh Trophy búinn!  Mótið hófst kl. 17 og stóð til rétt rúmlega 21.  Allir stóðu sig vel og voru félaginu til sóma og sýndu það að Ísland er að koma sterkt inn.  Í flokki Springs B voru 23 keppendur og voru þær Helga Jóhannsdóttir, Birta Rún Jóhannsdóttir og Urður Ylfa Arnarsdóttir í þeim flokki og voru úrslitin þau að Helga lenti í 4. sæti, Birta í 11 og Urður í 13.  Í Debs B var 21 keppandi og kepptu í þeim flokki þær Sigrún Lind Sigurðardóttir, Ingibjörg Bragadóttir og Telma Eiðsdóttir og urðu úrslitin þannig að Sigrún varð 7., Ingibjörg 19. og Telma 20!  Þær eru allar í skýjunum yfir þessum úrslitum og getum við verið meira en stolt af þeim!

SA - Fálkar í kvöld

Í kvöld kl 19:00 mætast kvennalið Skautafélags Akureyrar og Fálkanna frá Winnipeg. Nú mæta allir og styðja stelpurnar!

Fréttir af Svíþjóðarförum!

Helstu fréttir af Svíþjóðarförunum, Audrey, Sigrúnu, Guðnýju, Ingibjörgu, Telmu, Helgu, Birtu og Urði!
  • vaknað 4 að íslenskum tíma á hótel Björk í Reykjavík
  • lent í Stokkhómi rétt fyrir 13 að staðartíma
  • farið í smá leiðangur um svæðið
  • kíkt inn í skautahöll og ísinn prófaður
  • gekk vel hjá öllum en allir jafnframt sammála um að höllin okkar heima sé miklu fallegri!
  • farið í bæði heitan pott og sauna á hótelinu eftir æfingu og slakað vel á
  • farið í háttinn upp úr 22!
Svo hefst keppnin á morgun, föstudaginn 31. mars og keppa Birta, Urður, Helga, Telma, Ingibjörg og Sigrún á morgun milli 16 og 21 að staðartíma en Guðný keppir á laugardaginn og Audrey á bæði laugardag og sunnudag!

Fréttir af færð

Þungfært er víða á heiðum en ferð Fálkanna gengur vel.