Frábær jólahátíð að baki!

Í gær var jólahátíð Listhlaupadeildar og gekk sýningin vonum framar. Yngri iðkendurnir slóu í gegn í framsetningu sinni á "Þegar Trölli stal jólunum", ýmist í líki Trölla, snjókorna, Trölla að leika jólasvein, kátra barna sem hlakkar til jólana eða hreindýr. Jólaball á ís var haldið á eftir sýningunni, þar sem tveir sveinar af fjöllum kíktu í heimsókn og gáfu börnunum klementínur til að fá þau í sannkallað jólaskap.

 Seinni sýningin var ekki síðri, en þar komu fram eldri skautarar og stóðu sig alveg frábærlega í sinni túlkun á ýmsu tengt jólunum. Án þess að gera lítið úr hæfileikum annarra skautara, þá verður að segjast að við í stjórninni höfum staðið uppúr með snilldar skauta takta sem seint gleymast í okkar atriði, þar sem við túlkuðum húsmæður að elta jólakalkúninn með stórkostlegri innlifun! :-)

Ég vil fyrir hönd deildarinnar óska öllum gleðilegra jóla og þakka fyrir allt gamalt og gott

Hilda Jana formaður