Meistaraflokkar SA hefja keppnistímabilið á laugardag

Meistaraflokkar SA karla og kvenna hefja bæði leik í deildarkeppninni á laugardag þegar liðin ferðast suður og leika bak í bak leiki við Fjölni í Egilshöll. Mikil eftirvænting er fyrir fyrstu leikina í deildarkeppninni og fyrir því hvernig liðin koma úr undirbúningstímabilinu sem hefur staðið yfir frá í byrjun ágúst. Liðin okkar bæði eru vel mönnuð frá síðasta tímabili en þó með nokkrum leikmannabreytingum.

Keppnistímabilið í íshokkí hefst í dag

Íshokkítímabilið hefst formlega í dag með fyrstu keppnileikjunum í Íslandsmóti en það eru tveir U16 leikir sem báðir verða spilaðir eru í Skautahöllinni hjá okkur í dag. Fyrri leikurinn er lið SA Víkinga gegn Fjölni kl 16:30 og sá síðari leikur SA Jötna gegn SR kl 19:00. Ein deild er í þessu móti þar sem SA teflir fram tveimur liðum en SR og Fjölnir sitthvoru liðinu. Við hvetjum íshokkíunendur að mæta í höllina og horfa á skemmtilega íshokkíleiki.

Upphaf æfingatímabilsins

Æfingar eru nú að hefjast aftur samkvæmt tímatöflu og starfsemi deilda félagsins er komin á fullt. Byrjendaæfingar í listhlaupi hefjast 26. ágúst og eru á mánudögum og miðvikudögum kl. 16:00-17:15 en aðrar æfingar eru samkvæmt tímatöflu. Byrjendaæfingar í íshokkí hefjast á þriðjudag og verða alla þriðjudaga og fimmtudag kl. 17:00-17:45 og aðrar æfingar samkvæmt tímatöflu. Krulluæfingar hefjast í September og verða auglýstar sérstaklega á heimasíðu krulludeildar.

Formannsskipti í íshokkídeild

Mikil tímamót eiga sér nú hjá íshokkídeild SA þar sem að formannsskipti eru að eiga sér stað. Ólöf Björk Sigurðardóttir eða Ollý eins og við þekkjum hana hefur látið af störfum sem formaður íshokkídeildarinnar eftir 20 ár sem formaður hennar. Við keflinu tekur Elísabet Inga Ásgrímsdóttir eða Beta eins og hún er jafnan kölluð.

Ný stjórn íshokkídeildar SA

Aðalfundur íshokkídeildar fór fram í gærkvöldi í félagssalnum í Skautahöllinni og var fundurinn vel sóttur. Á dagkrá voru hefðbundin aðalfundarstörf en fyrir fundinum lá þó að Ólöf Björk Sigurðardóttir sem hefur verið formaður deildarinnar í 20 ár myndi ekki gefa kost á sér áfram í formannsembættið.

Skauta- og íshokkí leikjanámskeið SA í júní

Skauta- og íshokkí leikjanámskeið SA fyrir börn fædd 2018-2014 verður haldið í júní. Frábært tækifæri fyrir bæði byrjendur sem og iðkendur til þess að skemmta sér í leikjum og fá skautakennslu í leiðinni. Leikjanámskeiðið fer fram bæði á útisvæðinu við Skautahöllina og inni á skautasvellinu. Það er hægt að velja á milli þess að vera í listskautum eða í fullum íshokkíbúnaði í leikjunum á námskeiðinu. Allur búnaður innifalinn og engin reynsla á skautum er nauðsynleg. Sarah Smiley hefur yfirumsjón með námskeiðinu, hockeysmiley@gmail.com fyrir nánari upplýsingar. Skránin á námskeið: sportabler.com/shop/sa/ishokki

Aðalfundur íshokkídeildar 21. maí

Stjórn Íshokkídeildar Skautafélags Akureyrar boðar til aðalfundar þriðjudaginn 21. maí kl. 20:00 í félagsalnum í Skautahöllinni.

U16 stelpuhelgin, bikarmót í Egilshöll

Síðastliðna helgi skelltu sér suður í Egilshöll um 30 SA stelpur á aldrinum 10 - 16 ára, ásamt þjálfurum og fararstjórum og spiluðu hokkí við stelpur frá Fjölni og SR. SA tefldi fram tveimur liðum, annars vegar spiluðu Ynjur í A riðli og Ásynjur í AA riðli en þar er einna helst aldur, reynsla og styrkleiki sem skilur á milli. Ynjur spiluðu við lið frá Fjölnir og Ásynjur gegn liði frá SR. Þetta er fjórða vorið sem U16 stelpuhelgin er haldin og er mótið spilað sem bikarmót en það er mikilvægt fyrir stelpur að fá þá reynslu að spila gegn stelpum því það er mikill munur á því og að spila með eða gegn strákum.  Leikirnir voru spennandi og fór m.a. Í vítakeppni en svo fór að lið Fjölnis sigraði A riðil og SR AA riðil, óskum við þeim til hamingju með sigurinn. Hér að neðan má sjá myndir af liðunum, Ynjum og Ásynjum ásamt þjálfurunum Maríu Guðrúnu og Ingu Rakel.

Árshátíð hokkídeildar 2024

Hokkídeildin hélt árshátíð sína þann 30. apríl s.l. Alls voru Það 127 manns sem komu saman á Vitanum og fögnuðu nýliðnu keppnistímabili, leikmenn frá U14 og upp úr, foreldrar, félagsmenn og velunnarar. Okkar uppáhalds kokkur, Helgi á Vitanum, sá um ljúffengar veitingar að venju og skemmtileg “highlight” myndbrot frá leikjum vetrarins voru sýnd. Að endingu voru verðlaun veitt eins og sjá má á meðfylgjandi myndum hér að neðan. Við óskum verðlaunahöfum til hamingju, þökkum fyrir veturinn og hlökkum til að sjá alla iðkendur aftur á næsta tímabili þó við eigum vissulega eftir að sjá sem flesta á vormótinu sem er framundan nú í maí.

Víkingar eldra U16 lið Skautafélags Akureyrar varð Íslandsmeistari á nýliðinu tímabili og Jötnar, yngra liðið, aðeins einu stigi frá öðru sætinu.

Það er nokkuð um liðið síðan ljóst var að U16 lið okkar, Víkingar væru orðnir Íslandsmeistarar. Það kom í ljós eftir næst síðasta leik liðsins sem fram fór við Fjölni þann 13. apríl að liðið hefði tryggt sér titilinn. Síðasti U16 leikur tímabilsins fór svo fram í skautahöllinni á Akureyri fimmtudaginn 18. apríl, innbyrðis leikur milli SA liðanna Jötna og Víkinga þar sem Jötnar fóru með sigur af hólmi í geysi spennandi leik. U16 Jötnar enduðu í 3. sæti í mótinu að þessu sinni en leikirnir hafa yfirleitt verið mjög spennandi ekki síst innbyrðis leikir SA liðanna.