Artís Tannlæknastofa styrkir Vormót SA með nýjum vestum

Vormótið hjá hokkídeild SA stendur nú sem hæst en mótið er innanhússmót sem haldið er ár hvert í maí með það að markmiði að skapa skemmtilega og jákvæða keppni meðal iðkenda félagsins.

Glöggir áhorfendur hafa eflaust tekið eftir nýjum og glæsilegum vestum sem krakkarnir hafa skartað á mótinu. Vestin voru keypt með styrk frá Artís Tannlæknastofu sem styrkti deildina sérstaklega til kaupanna. Vestin eru í fimm litum og merkt með SA Víkingnum sem gerir auðvelt að skipta upp liðum og búa til skemmtilegt og spennandi mót.

Foreldrafélag SA færði Rögnvaldi Björnssyni tannlækni hjá Artís Tannlæknastofu blómvönd að þakklætisvotti þegar hann kom að fylgjast með fjárfestingunni í notkun á Vormótinu. Við hjá SA erum virkilega þakklát fyrir þennan mikilvæga stuðning sem mun nýtast barnastarfinu afar vel á komandi árum.