ÍSLANDSMÓT BARNA OG UNGLINGA 2021

Helgina 19.-21. nóvember var Íslandsmót barna og unglinga 2021 haldið í skautahöllinni í Laugardal. Á þessu móti keppa iðkendur í eftirfarandi aldursflokkum: Chicks, Cubs, Basic novice girls, Intermediate novice girls og Intermediate women. LSA átti iðkendur í öllum keppnisflokkum mótsins. Allir LSA keppendur enduðu á verðlaunapalli í þeim keppnisflokkum þar sem veitt voru verðlaun. Vegna hertra sóttvarnaraðgerða vegna Covid-19 þurftu allir keppendur, þjálfarar, áhorfendur, sjálfboðaliðar og allir þeir sem komu að mótinu að sýna neikvætt hraðpróf við komu í skautahöllina, sem var í fyrsta sinn sem þess hefur þurft, en með þessum ráðstöfunum var hægt að halda mótið. Lukkulega gátu allir 9 iðkendur LSA sýnt fram á neikvætt hraðpróf og sýnt áhorfendum hæfni sína á ísnum.

Skautafélag Akureyrar með alla Íslandsmeistaratitlana á Íslandsmeistaramóti ÍSS

Skautarar frá Skautafélagi Akureyrar unnu alla þrjá Íslandsmeistaratitlana á Íslandsmeistaramóti ÍSS sem fram fór í Laugardal um helgina. Freydís Jóna Jing Bergsveinsdóttir sigraði í Advanced Novice, Júlía Rós Viðarsdóttir í Junior og Aldís Kara Bergsdóttir í Senior. Allar þrjár voru að verja titlana sína frá því í fyrra en Aldís Kara Bergsdóttir setti einnig stigamet á Íslandi á mótinu bæði í stutta og frjálsa sem og heildarstig.

Aldís Kara með nýtt Íslandsmet

Aldís Kara Bergsdóttir setti nýtt stigamet á Íslandsmeistaramóti ÍSS um helgina. Aldís Kara bætti Íslandsmetið í stutta prógramminu sem hún setti sjálf Finlandia Trophy í október en nú á laugardag fékk hún 47.31 stig. Hún stoppaði ekki þar því í gær bætti hún svo metið í frjálsa líka þegar hún fékk 88,83 stig og 136.40 stig í heildarskor sem er hæsta skor sem skautari hefur fengið á Íslandi.

SA Víkingar vs Fjölnir í Hertz-deild karla laugardag

Leikur í Hertz-deild karla á laugardag. SA Víkingar taka á móti Fjölni í Skautahöllinni Akureyri kl: 16:45. Miðaverð er 1000 kr. og 500 manna fjöldatakmanir. Forsala miða fer fram í gegnum miðasölu appið Stubb. Grímuskylda í stúku og skráning í sæti.

4 Nations mót U18 stúlkna hefst í Laugardal í dag

Íslenska U18 landslið kvenna í íshokkí tekur þátt í 4 Nations móti í Laugardal nú um helgina. Mótið er alþjóðlegt æfingamót en auk Íslands eru þáttökuþjóðir Spánn, Bretland og Póland. Öllum leikjunum verður streymt á ÍHÍ TV. Fyrsti leikur Íslands er í kvöld kl. 20:30 þegar liðið tekur á móti Póllandi. Við eigum fjölmarga fulltrúa í liðinu og Sarah Smiley okkar er aðalþjálfari liðsins.