27.05.2012			
	
	Aðalfundur  Skautafélagsins  fór fram á fimmtudagskvöldið í Skautahöllinni.  Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf og svo stiklað sé á stóru yfir það sem fram kom á fundinum þá má helst nefna góða árangur deilda á árinu 2011. Margir sigrar unnust í keppnisgreinunum þremur og átti Skautafélagið flesta Íslandsmeistara og flesta landsliðsmenn allra akureyskra íþróttafélaga og fengu viðurkenningar fyrir það í hinu árlega hófi Akureyrarbæjar um áramótin.
 
	
		
		
			
					23.05.2012			
	
	Aðalfundur foreldrafélags LSA verður haldinn í skautahöllinni miðvikudaginn 30. maí nk. kl. 19 (strax á eftir fundi um skautabúðir). Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, m.a. kosning í stjórn. Sitjandi stjórn mun áfram gefa kost á sér, en æskilegt er að fá 2 foreldra til viðbótar í þetta skemmtilega starf. Þeir sem eru áhugasamir um framboð til stjórnar eru beðnir um að senda tölvupóst á jona@nordlenska.is. 
Boðið verður upp á kaffi og með‘ðí.
Besta kveðja,
Jóna, Edda, Vilborg og Inga
 
	
		
		
			
					23.05.2012			
	
	Halló þið öll sem að ætlið í skautaæfingabúðir í sumar
 
	
		
		
			
					14.05.2012			
	
	Aðalfundur Krulludeildar verður haldinn í Skautahöllinni á Akureyri mánudagskvöldið 21. maí kl. 20.00. Venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum deildarinnar. 
 
	
		
		
		
			
					12.05.2012			
	
	Myndir úr föstudagsleikjunum.
 
	
		
		
			
					11.05.2012			
	
	Þrjú lið frá Kanada eru hér á Akureyri núna og spila í kvöld þrjá leiki, þann fyrsta kl 18:30 við meistaraflokk SA, Valkyrjur kl 20:00 og loks Old boys kl 21:30. Frítt er inná alla leikina og hvetjum við sem flesta að koma og horfa á horfa á skemmtilega leiki.
 
	
		
		
			
					11.05.2012			
	
	Fáum hóp á laugardag, aðstoðarfólk óskast.
 
	
		
		
			
					09.05.2012			
	
	Verður haldin sunnudaginn 20. maí kl. 17:00.
 
	
		
		
			
					07.05.2012			
	
	Nú er undirbúningur fyrir vorsýninguna komin á fulla ferð, af þessum sökum verður breyting á tímatöflu.