05.09.2025
Það er alltaf skemmtilegt þegar uppaldir leikmenn snúa aftur heim til að klæðast rauðu treyjunni. Þrír ungir en gríðarlega sterkir og spennandi leikmenn eru klárir og gera meistaraflokkana okkar enn sterkari í toppbaráttunni fyrir komandi tímabil.
Kolbrún Garðarsdóttir – sóknarmaður #27 – frá Fjölni
Þarf varla að kynna en hún var marka- og stigahæsti leikmaður Toppdeildar kvenna á síðasta tímabili og allra besti leikmaður deildarinnar síðustu ár. Síðustu tvö tímabili hefur hún verið fyrirliði Fjölnis og leitt þær til Íslandsmeistaratitils í bæði skiptin. Kolbrún snýr nú aftur heim í SA og við bíðum spennt eftir að sjá hana aftur á ísnum í SA treyjunni.
Jakob Jóhannesson – markmaður #55 – úr námsleyfi
Jakob snýr aftur heim að sunnan eftir að hafa tekið sér árs námsleyfi frá hokkíinu. Jakob var fyrsti markvörður karlalandsliðsins og með bestu markvörslu deildarinnar um nokkurra ára skeið áður en hann fór í leyfið. Jakob er nú snúin heim og mættur í markið og styrkir markvarðateymi liðsins með Róberti Steingrímssyni. Við hlökkum til sjá Jakob koma sér aftur í gírinn og byrja að loka markinu.
Arnar Kristjánsson – 20 ára varnarmaður #8 – frá EJ Kassel (Þýskalandi)
Arnar Kristjánsson er einn efnilegasti varnarmaður landsins og hefur flakkað á milli þess að spila erlendis og hér heima síðustu ár. Arnar er mjög sóknarsinnaður varnarmaður og er komin með 13 A-landsleiki þrátt fyrir ungan aldur og hefur verið valinn besti varnarmaður heimsmeistaramóta með unglinga- og ungmennalandsliðum Íslands. Arnar mun styrkja varnarlínuna okkar og kemur auk þess með glimrandi sóknarleik sem verður gaman að fylgjast með í vetur.
19.08.2025
Æfingar hjá Skautafélagi Akureyrar eru nú að fara á fullt samkvæmt tímatöflu og er starfsemi allra deilda að taka við sér eftir sumarið. Byrjendaæfingar hefjast samkvæmt tímatöflu í næstu viku.
Byrjendaæfingar:
Listhlaup: Hefjast mánudaginn 25. ágúst og verða alla mánudaga og miðvikudaga kl. 16:00–17:30. Upplýsingar og skráning: thjalfari@listhlaup.is
Íshokkí: Hefjast þriðjudaginn 26. ágúst og verða alla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:00–17:45. Upplýsingar og skráning: hockeysmiley@gmail.com
Krulla: Hefst í september og verða æfingar auglýstar sérstaklega á heimasíðu krulludeildar.
Almenningstímar hefjast í Skautahöllinni fyrstu helgina í september og fyrsta skautadiskó vetrarins verður föstudaginn 1. september.
Við hvetjum foreldra, iðkendur og áhugafólk um íþróttirnar til að kynna sér æfingatöflu félagsins og mæta með okkur í skemmtilegt og fjölbreytt ísstarf í vetur.
01.08.2025
Íshokkíæfingabúðir SA hefjast strax eftir versló og standa yfir fyrstu 3 vikurnar í ágúst. Skráning í æfingabúðirnar er enn opin og nokkur laus sæti í öllum hópum. Leikmenn fara daglega á svellið, afísæfingar, fræðslustundir og kylfu- og skotæfingar. Frábær undirbúningur fyrir tímabilið þar sem þáttakendur fá miklar framfarir. Skráning á Abler. Sjáumst á ísnum á þriðjudag!
11.06.2025
í lok maí hélt hokkídeildin árshátíðina sína þar sem saman komu leikmenn frá U14 upp í meistaraflokka, þjálfarar, foreldrar og velunnarar. Gestir nutu að vanda ljúffengs matar hjá Helga á Vitanum og skemmtu sér undir góðri veislustjórn Arndísar Eggerz Sigurðardóttur veislustjóra og leikmanns meistaraflokks kvenna.
Formaður deildarinnar flutti fáein orð og minntist m.a. á allt það öfluga og góða starf sem á sér stað hjá sí stækkandi deild, áskoranir sem því fylgja og þá miklu vinnu og vegferð sem hokkídeildin er þátttakandi í ásamt öðrum deildum félagsins. Þá vinnu sem farið hefur fram með virkri þátttöku iðkenda, þjáfara, starfsfólks og stjórna í fræðsluviðburðum og vinnufundum og snýr í stuttu máli að virðingu og góðum heilbrigðum samskiptum. Afrakstur vinnu vetrarins verði svo innleiddur í upphafi næsta tímabils. Eldri iðkendur, foreldrar og sjálfboðaliðar sem þekkja íþróttina vel verði að stíga enn betur inn í það hlutverk að bjóða nýtt fólk velkomið, kenna og útskýra reglur og vinnulag við íþróttina innan vallar og utan. Þannig muni hokkí fjölskyldan vaxa og dafna enn betur en hún hafi gert og SA hjartað að slá jafnvel enn taktfastar en áður, ef allir eru samstíga og vinna að sama marki.
Að vanda sýndu flokkarnir highlight myndbrot frá leikjum vetrarins og verðlaun og viðurkenningar voru veitt ásamt því að meistaraflokkarnir þökkuðu sínu dygga aðstoðarfólki vel unnin störf eftir tímabilið.
02.06.2025
Vorsýning Listskautadeildar, Litli prinsinn, er á fimmtudag, 5. júní kl. 19:00 í Skautahöllinni. Miðasala á staðnum og foreldrafélagið verður með veitingasölu í hléinu og pekkjakast í hléi. "Allir fullorðnir menn hafa fyrst verið börn. (En fáir muna eftir því.)"
Miðaverð:
18+ 2.500 kr.
6-17 ára 1.500 kr.
Frítt fyrir 5 ára og yngri
Pylsusala foreldrafélagsins frá kl.18 og líka á eftir sýningu.
Þar verður í boði, fyrir utan pylsurnar, gos, djús, kaffi og vatn og posi á staðnum.
Einnig verður hægt að kaupa rósir.
25.05.2025
Það hefur verið líf og fjör í lífi Sunnu Björgvinsdóttur fyrirliða íslenska kvennalandsliðsins og leikmanns Södertalje SK eftir að keppnistímabilinu hennar lauk á ísnum um miðjan apríl en hefur hún staðið í ströngu utan ís og hefur leiðtogahlutverkið fengið nýja vídd. Sunna átti frábært tímabili á ísnum í vetur eins og þeir sem hafa fylgst með vita en hún fór fyrst með Södertalje alla leið í úrslitaeinvígi um sæti í SDHL deildinni og leiddi svo íslenska kvennalandsliðið til síns besta árangurs á Heimsmeistaramóti frá upphafi. Frá þeim tíma hefur Sunna ekki slegið slöku við því hún hefur tekið þátt í Leiðtogaráðstefnu IIHF í Tékklandi – fengist boði sænska Konungsins um boð í Sænsku konungshöllina og er nú mætt aftur á heimaslóðirnar til þessa að leiða næstu kynslóð ungra íshokkíkvenna á 25 ára afmæli kvennaíshokkís á Íslandi.
23.05.2025
Undanfarnar vikur hefur Skautafélag Akureyrar tekið á móti tveimur High School hópum með ungum íshokkíleikmönnum frá Kanada. Hóparnir koma í gegnum samstarf við Hockey Without Borders, en það var einmitt í gegnum þetta samstarf sem félagið komst í samband við Sheldon, yfirþjálfara SA, sem hefur verið duglegur að halda þessu samstarfi virku.
21.05.2025
Aðalfundur Skautafélag Akureyrar fór fram á fimmtudagskvöld í félagssalnum í Skautahöllinni. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf með skýrslu um starfsemi félagsins, skýrslu um fjárhag, reikninga og fjárhagsáætlun, kosningu stjórnar og önnur mál. Ingibjörgu Magnúsdóttur var veitt gullmerki félagsins fyrir störf sín fyrir félagið síðastliðin 17 ár.
13.05.2025
Í júní bíður SA uppá skauta- og íshokkí leikjanámskeið fyrir öll börn fædd 2019-2015 daganna 10. - 20. júní Frábært tækifæri fyrir bæði byrjendur sem og iðkendur til þess að skemmta sér í leikjum og fá skautakennslu í leiðinni. Leikjanámskeiðið fer fram bæði á útisvæðinu við Skautahöllina og inni á skautasvellinu. Það er hægt að velja á milli þess að vera í listskautum eða í fullum íshokkíbúnaði í leikjunum á námskeiðinu. Allur búnaður innifalinn og engin reynsla á skautum er nauðsynleg. Sarah Smiley hefur yfirumsjón með námskeiðinu, hockeysmiley@gmail.com fyrir nánari upplýsingar. Skráning á námskeið: https://www.abler.io/shop/sa/almennt
12.05.2025
Aðalfundur íshokkídeildar fór fram í gærkvöld í félagssalnum í Skautahöllinni. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf með skýrslu stjórnar um starfsemi deildarinnar á liðnum vetri, skýrsla um rekstur og kosning nýrrar stjórnar.
Í skýrslu íshokkídeildarinnar um starfsemi tímabilsins kom meðal annars fram að fjöldi iðkenda 18 ára og yngri væru nú um 250 talsins en yfir 60 nýir iðkendur bættust við í vetur. Yngstu aldursflokkarnir eru fullsetnir svo ekki hefur verið unnt að auglýsa né halda og námskeið fyrir nýja iðkendur frá því í haust en Sarah Smiley var yfirþjálfari yngri flokka í vetur. Íþróttaárangurinn á tímabilinu var góður þar sem Íslandsmeistaratitlar unnust í meistaraflokki karla, í U18 og U16 en Sheldons Reasbecks var yfirþjálfari þessara flokka. Þetta var fyrsta heila tímabilið með nýju æfingar- og félagsaðstöðunni en hún hefur lyft faglegu starfi deildarinnar í nýjar hæðir og er algjör bylting fyrir starfsemi deildarinnar. Iðkendur, þjálfarar, stjórnar- og starfsfólk allir tók þátt í fræðslu í vetur ásamt fulltrúum annarra deilda félagsins um fordóma og samskipti og iðkendur útbjuggu samskiptasáttmála fyrir félagið. Starf foreldrafélag SA var öflugt að vanda og er áfram einn af hornsteinum hins öfluga barna- og unglingastarfs deildarinnar. Viðsnúningur varð á rekstri deildarinnar árið 2024 en rekstrarhagnaður var rúmar 5 milljónir þar sem stærstu breytingarnar voru að ársmiðasala, æfingagjöld og styrkir jukust á milli ára.