Kvennaliðið hefur keppni í Toppdeildinni í dag

Meistaraflokkur kvenna hefur keppni í Toppdeildinni í dag þegar Íslandsmeistarar SR mæta í Skautahöllina á Akureyri. Eftirvæntingin er mikil í herbúðum SA. Nýr þjálfari hefur tekið við liðinu og nýjir leikmenn bæst við leikmannahópinn. 

Stærstu breytingarnar á leikmannahópnum eru þær að landsliðsfyrirliðinn Sunna Björgvinsdóttir er komin heim í SA eftir veru í Svíþjóð og Hilma Bóel Bergsdóttir snýr aftur heim eftir nokkur ár hjá Fjölni og hlé frá íshokkíi á síðasta tímabili. Á móti eru tveir ungir landsliðsleikmenn farnir erlendis, Aðalheiður Ragnarsdóttir er farin til Svíþjóðar þar sem hún leikur með IF Sundsvall Hockey og Kolbrún Björnsdóttir er gengin til liðs við CP Sharks Mechelen í Belgíu, sem leikur í næstefstu deild Þýskalands. Að öðru leyti er kjarninn í liðinu sá sami frá síðasta tímabili og Shawlee Gaudreault er áfram aðalmarkvörður liðsins. Fjölmargir ungir og efnilegir leikmenn úr yngri flokkum SA eru jafnframt að banka á dyrnar og fá tækifæri til að vinna sér stærra hlutverk með meistaraflokki í vetur. Emil Alengård tók í sumar við sem yfirþjálfari meistaraflokka karla og verður spennandi að hvernig liðið mun þróast í vetur undir hans handleiðslu.

Þrjú lið taka þátt í Toppdeild kvenna í vetur: SA, SR og Fjölnir. SA leikur tvo fyrstu leiki sína á heimavelli en Fjölnir kemur í heimsókn næsta laugardag.

Það er spennandi hokkívetur framundan. Við hvetjum stuðningsfólkið okkar til að fjölmenna í Skautahöllina í dag og styðja stúlkurnar til sigurs í fyrsta leik tímabilsins.

SA – SR
Toppdeild kvenna
Skautahöllin á Akureyri
Í dag kl. 16:45