Karfan er tóm.
Listskautadeild Skautafélags Akureyrar heldur Skautamaraþon í Skautahöllinni laugardaginn 19. september. Þar ætla iðkendur deildarinnar að skauta samfleytt í 12 klukkustundir og safna um leið fjármagni fyrir starfsemi deildarinnar.
Skautamaraþonið er bæði skemmtileg áskorun og mikilvæg fjáröflun fyrir deildina. Við hvetjum fjölskyldur, vini, fyrirtæki og aðra velunnara til að styðja við iðkendurna og Listskautadeildina. Öll framlög, stór sem smá, skipta máli og hjálpa deildinni að skapa áfram góðar aðstæður fyrir iðkendur til æfinga og þátttöku í íþróttinni.
Hægt er að leggja framlag beint inn á reikning Listskautadeildar:
Reikningsnúmer: 0566-05-443393
Kennitala: 510200-3060
Gott er að setja nafn barns í skýringu með greiðslunni.
Einnig er hægt að styrkja átakið í markaðstorgi Abler.
Við þökkum kærlega fyrir allan stuðning við iðkendurna okkar og starf Listskautadeildarinnar. Margt smátt gerir eitt stórt! ⛸️🙏