Kristinn Eiríkur Bóasson - Minning

Eiki byrjaði að æfa krullu með vinnufélögum sínum hjá Vegagerðinni árið 2004 og eins og hans var von og vísa gaf hann sig allan í íþróttina. Á svellinu var hann mikill keppnismaður sem vildi ná árangri, útsjónarsamur og ávallt tilbúinn að leggja allt sitt af mörkum fyrir lið sitt. Einnig var hann duglegur að sinna sjálfboðaliðsstörfum fyrir krulludeildina og sat m.a. í stjórn í tvö ár.

Eiki spilaði lengst af með liðunum Kústar og Riddarar og fagnaði mörgum titlum á keppnisferli sínum. Stærstu sigrarnir voru Íslandsmeistaratitill með Kústunum, árið 2007 og gullverðlaun á Icecup með liðinu The Others árið 2015.

Það var þó ekki bara á heimavelli sem hæfileikar Eika nýttust. Hann keppti fyrir hönd Íslands í B-deild Evrópumótsins árið 2007, auk þess sem hann tók þátt á heimsmeistaramóti eldri leikmanna (World Senior Curling Championships) árin 2006 og 2008.

Eiki var maður margra áhugamála og þegar hann fékk áhuga á einhverju lagði hann sig allan fram. Hann var frábær tónlistarmaður og þegar færi gafst dró hann líka fram golfkylfurnar. Tímaleysi og erfið veikindi urðu svo til þess að smám saman dró úr viðveru hans og störfum fyrir félagið hin síðari ár. Hann var þó ávallt tilbúinn að hlaupa í skarðið þegar vantaði liðsmann, ef tími og heilsa leyfði og ekki að sjá að hann hafi neinu gleymt.

Við krullufélagarnir kveðjum Eika Bó með söknuði og miklu þakklæti fyrir allar stundirnar, jafnt í sigrum sem töpum, innan vallar sem utan. Minningin um góðan og traustan félaga mun lifa áfram um ókomna tíð á svellinu í Skautahöllinni.

Fjölskyldu hans og ástvinum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Hvíli hann í friði.