01.05.2026
Í dag var borinn til grafar Birgir Valur Ágústsson, heiðursfélagi í Skautafélagi Akureyrar. Biggi Ágústar var alla tíð mikill skautafélagsmaður og sérstakur áhugamaður um íshokkí. Hann var formaður félagsins á árunum 1970 – 1975 og lagði sitt lóð á vogarskálarnar við rekstur félagsins og uppbyggingu þess. Hann kom einnig að uppbyggingu skautasvæðisins að Krókeyri og tók virkan þátt í undirbúningi fyrir vélfrysta skautasvellið sem vígt var í janúar 1988, sem var stórt framfaraskref fyrir félagið. Sem athafnamaður í bænum studdi hann ásamt bræðrum sínum félagið af heilum hug, og þegar keppt var í Reykjavík fékk liðið oftar en ekki lánaða bíla til að komast á leikstað svo eitthvað sé nefnt. Einnig var fluttur inn íshokkíbúnaður og kylfur þegar slíkt var erfitt að komast yfir hér á landi og síðar sett upp verslun með skautabúnaði. Biggi keppti lengi í íshokkí með félaginu og hélt áfram að æfa langt fram eftir aldri, allt fram á sjötugsaldur. Á ísnum var hann kappsamur og það var sérstaklega ánægjulegt að spila með honum síðustu árin. Við minnumst hans á fjær bláu, kallandi á pökkinn með heldur frjálslega túlkun á rangstöðureglum. Enn þann dag í dag er talað um „að taka Bigga Ágústar á þetta“ þegar menn skila sér ekki í vörnina og bíða frammi. Í Bigga áttum við hauk í horni sem fylgdist ætíð vel með gengi félagsins og þegar maður rakst á hann á förnum vegi var íshokkíið alltaf til umræðu. Biggi var gerður að heiðursfélaga Skautafélags Akureyrar á 60 ára afmæli félagsins árið 1997. Að lokum vil ég fyrir hönd Skautafélags Akureyrar þakka fyrir ómetanlegt framlag til félagsins sem og félagsskapinn í ísnum, og sendi eftirlifandi eiginkonu hans, Ingunni Þóru Baldvinsdóttur, börnum þeirra, fjölskyldu og vinum, innilegar samúðarkveðjur.
30.04.2026
Alþjóðlega krullumótið IceCup hófst í dag og er haldið í Skautahöllinni í 21. skipti. Yfir 80 keppendur í 20 liðum frá 13 löndum (Þýskaland, Ungverjaland, Tékkland, Sviss, Slóvakía, Skotland, Sealand, Kanada, Holland, Fillippseyjar, England, Bandaríkin og Ísland) taka þátt í mótinu í ár en það er Krulludeild Skautafélags Akureyrar sem á veg og vanda af þessu skemmtilega móti sem laðar að mun fleiri lið en fá þáttökurétt. Opnunarhátið mótsins fór fram í gærkvöld í húsi Flugbjörgunarsveitinnar og hófst keppnin svo í morgun og stendur yfir frá morgni til kvölds næstu daga og klárast svo með úrslitaleikjum á laugardagskvöld og lokahófi. Við hvetjum fólk til þess að koma líta á keppnina en fyrir utan hörku spennandi keppni og litríka búninga liðanna þá er seld kjötsúpa og aðrar veitingar á mjög svo hóflegu verði.
28.04.2026
Skautafélag Akureyrar tryggði sér báða Íslandsmeistaratitlana U14 liða um helgina á síðasta helgarmóti tímabilsins sem fór fram á Akureyri. AAA liðið, SA Víkingar, unnu alla sína leiki um helgina og vann 11 af 12 leikjum sínum á tímabilinu. Spennan var meiri í AA liðum en þar réðust úrslitin í síðustu leikjunum en SA Ynjur/Jötnar unnua alla sína leiki um helgina og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn.
Við óskum SA liðunum innilega til hamingju með frábært tímabil og Íslandsmeistaratitlana.
16.04.2026
SA Jötnar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í U18 um helgina með 10-2 sigri á Fjölni og 6-4 sigri á SR. Jötnar hafa þar með unnið 9 af 11 leikjum sínum í vetur. SA teflir fram tveimur liðum í U18, en SA Víkingar sitja í öðru sæti með 7 sigra í 11 leikjum. Bæði lið eiga einn leik eftir á tímabilinu, innbyrðis viðureign, en sá leikur dugar Víkingum ekki til að ná toppsætinu. SR og Fjölnir hafa bæði lokið leikjum sínum á tímabilinu.
13.04.2026
Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí hefur leik í dag á Heimsmeistaramótinu í II deild A sem fer fram í Bled í Slóveníu. Ísland mætir heimaliðinu Slóveníu í fyrsta leik kl. 17:30 á íslenskum tíma. Önnur lið í riðlinum eru Póland, Ástralía og Taívan en Norður-Kórea dró sig úr keppni og verða því bara 5 lið í riðlinum. Kvennalið SA á 10 leikmenn í liðinu ásamt fleirum sem spila erlendis og með öðrum félagsliðum. Hægt er að fylgjast með stöðu leikja og tölfræði á heimasíðu alþjóða íshokkísambandsins og leikirnir verða sýndir í beinu streymi á icehockeyiceland.tv.
05.04.2026
Íslenska karlalandsliðið í íshokkí hefur leik á Heimsmeistaramótinu í II deild B á morgun í Sofíu í Búlgaríu. Liðið hefur verið við æfingar á staðnum frá því á föstudag og undirbúningur gengið vel. Í gær spilaði Ísland æfingaleik gegn heimamönnum í Búlgaríu og lauk leiknum með öruggum 10–2 sigri íslenska liðsins.
31.03.2026
Heiðursfélagi Skautafélags Akureyrar og margfaldur Íslandsmethafi í skautahlaupi afhenti félaginu um helgina skautahlaupsskautana sína sem hún notaði við flest þau afrek sem hún vann til á ferlinum. Skautana afhenti hún félaginu á vormóti ÍSS sem fram fór um helgina og eru þeir nú til sýnis í Skautahöllinni ásamt verðlaunapeningum hennar og keppnisnúmerinu hennar, 13.
30.03.2026
U22 lið Jötna tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn um helgina eftir sigur á Húnum í Egilshöll. Jötnar unnu fyrri leikinn 5–2 í tvíhöfðanum og tryggður sér þar með Íslandsmeistaratitlinn en þetta var sjöundi sigur liðsins á Húnum í vetur.
26.03.2026
Leikur 3 í úrslitakeppninni í Toppdeild kvenna sem fara átti fram í dag er frestað til morguns vegna veðurs!
Leikurinn verður leikinn á föstudag kl. 16:45. Við sjáumst í stúkunni ❤️🤍🖤
Forsöluverð í Stubb 2500 kr fyrir fullorðna.
Miðaverð 3000 kr. í hurð.
15 ára og yngri 1000 kr.
Ath almenn árskort gilda ekki á úrslitakeppnina
Gull- og Silfurkort gilda og halda sínum sætum.
🎟 https://stubb.is/events/b890gn
🍔Hamborgarasalan hefst 30 mín fyrir leik í Miðgarði.
21.03.2026
Athugið breyttan leiktíma – fyrsti leikur í úrslitum kvenna hefst kl. 17:00 vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna.