Karfan er tóm.
Við hvetjum alla að koma og prófa að æfa skauta hjá listhlaupadeild skautafélagsins. Þar eru starfandi metnaðarfullir þjálfarar sem vilja sjá sem flesta á æfingum. Komið og prófið æfingu undir stjórn góðra þjálfara og í skemmtilegum félagsskap.
Kveðja Stjórnin
Fyrsti leikur hjá S.A. verður líklegast háður 17 sept. S.A. menn þurfa að leggja leið sína í höfuðborgina og etja kappi við stórveldið í Gravarvogi, BJÖRNINN!......að þora eða skora. En enn eitt árið eru S.A. menn að missa menn, en Birkir Árnason er farinn til Danmerkur og mun spila með "Arhus" í fyrstu deildinni. Þannig að mikil pressa verður á þeim leikmönnum sem eftir eru í meistaraflokki Skautafelags Akureyrar og gaman verður að sjá hvort þeir standast álagið þennan vetur. 2 nýir gamlir leikmenn hafa bæst í hópinn, þeir Matthías og Sigurður ,gaman verður að sjá hvernig þeir eiga eftir að standa sig eftir nokkur ára hlé frá íshokki. Ekki er útilokað að fleiri ný andlit bætist í hópinn en meira um það síðar. Við í S.A. vonum bara að fólk komi og fylli höllina á komandi leiktíð og öskri lungun úr sér...ÁFRAM S.A.!!!!!!!
Já enn hefur meistaflokkurinn misst leikmann því Rúnar "Lurkur" Rúnarsson hefur gengið í raðir Skautafélags Reykjarvíkur, og bætist hann í hóp norðanmanna sem við höfum lánað suður yfir heiðar. Við þökkum honum fyrir árin sem við höfum notið liðstyrk og þyngd hans. Við vonust til að sjá hann einhverntíman aftur í rauðu. ÁFRAM S.A.!!!!
Þar sem vertíðin er að byrja er vert að benda iðkendum á að hægt er að skrá sig hér á síðunni með því að nota tengilinn neðst í valmyndinni til hér vinstri "Skráning í félagið", en passið að vanda allann innslátt og gefa allar nauðsynlegar upplýsingar. Skráningarnar verða svo yfirfarnar og þið fáið síðan staðfestingu í tölvupósti.