04.01.2010
Fyrsta umferð janúarmótsins fór fram í kvöld. Garpar, Skytturnar, Fífurnar og Mammútar unnu í kvöld.
04.01.2010
Fyrsta umferð Janúarmótsins verður leikin í kvöld. Dregið verður í riðla fyrir leiki kvöldsins og er krullufólk því beðið um að mæta tímanlega.
03.01.2010
Í morgun hélt U20 landsliðið utan til keppni í 3.deild Heimsmeistaramótsins í íshokkí, sem að þessu sinni fer fram í Istanbul í Tyrklandi dagana 4. - 10 janúar. Liðið er nú í 3. deild en miklar vonir standa til þess að liðið vinni deildina að þessu sinni og vinni sér sæti í 2. deild að nýju þar sem liðið á réttilega heima. Mótherjar Íslands að þessu sinni eru N-Kórea, Tyrkir, Taipei, Ástralía, Búlgaría og Nýja-Sjáland. Þar sem liðin eru einu fleiri en venjulega er spilað í riðlum og Ísland var frekar heppið með riðil og spilar fyrst við Taipei, svo N-Kóreu og síðan Tyrkland áður en til úrslita kemur.
02.01.2010
Sarah hefur gert breytingar á æfingatöflunni, bæði ís og afís, svo skoðið hana vel. En 5. og 6. fl. mæta þó kl. 11 í fyrramálið og 7.fl. og byrjendur kl. 12 eins og tilkynnt var í pósti frá Kiddu (O:
01.01.2010
Erlendir keppendur sem hafa áhuga á að koma á Ice Cup óska eftir meðspilurum.
31.12.2009
Janúarmótið hefst mánudaginn 4. janúar.
30.12.2009
Jón Ingi Sigurðsson, fyrirliði Mammúta og íslenska landsliðsins, er krullumaður ársins 2009.
30.12.2009
Á sunnudaginn gerðum við okkur lítið fyrir og töpuðum fyrir Birninum á heimavelli, en það hefur ekki gerst í áraraðir. Þrátt fyrir allt áttum við ágætan leik og fjöldi skota á markið segir allt sem segja þarf því á meðan við áttum 40 skot á mark Bjarnarmanna áttu þeir aðeins 16 á okkar mark, en nýttu færin sín hins vega mjög vel. Það er því ljóst að vinnum ekki leiki með 69% markvörslu og ekkert annað í stöðunni en að endurskipuleggja varnarleikinn og senda markmennina til Síberíu.
29.12.2009
Eitt fjölmennasta Áramótamót Krulludeildar frá upphafi fór fram í gærkvöldi, 38 þátttakendur, vel heppnuð og skemmtileg kvöldstund.
24.12.2009
Stjórn Hokkídeildarinnar sendir öllum iðkendum og velunnurum jólakveðjur og þakkar samstarfið á árinu sem er að líða með ósk um farsælt komandi ár.