Minningarmót um Magnús Finnsson

Minningarót um Magnús Finnsson verður haldið 11. 12. og 13. febrúar í skautahöllinni á Akureyri. Fjögur “Old Boys” lið taka þátt í þetta sinn. Tvö frá SA, og svo SR og Björninn.

Dagskráin er svona:

 

Hver leikur verður 2 x 20 mín. lotur með fimm mínútna hlé á milli, ekkert klukkustopp.  Farið verður yfir ísinn á milli leikja.  Fyrir sigur fær lið 3 stig en jafntefli gefur hvoru liði 1 stig.  Í úrslitaleikina er raðað eftir stigafjölda en ef lið eru jöfn að stigum er farið fyrst eftir innbyrðis viðureignum og svo markatölu.

 

Mótsgjald er 2000 kr. á mann.  Þeir (auðvitað allir) sem ætla að vera í mat á laugardaginn verða að panta á föstudagskvöldið.  Verð á mat er 2000 kr. og (létt)öl selt á 600 kr.

  Fimmtudagur 11.02.2010  

Kl. 20:00         SA a – SA b

 Föstudagur 12.02.2010 

Kl. 22:00         SA a – Björninn

Kl. 23:00         SA b – SR

Kl. 24:00         SR – Björninn

  Laugardagur 13.02.2010 

Kl. 17.20         SA a – SR

Kl. 18:20         SA b – Björninn

Kl. 19:20         Spilað um 3. og 4. sæti

Kl. 20:20         Spilað um 1. og 2. sæti

  

Kl. 21:30         Kjúklingur og grín hjá Garðari mölla á Vegi-terian