2 leikir í Skautahöllinni í dag

Nú er orðið ferðafært og SRingar á leið norður og munu spila við SA tvo leiki í dag. Fyrri leikurinn er í meistaraflokki kvenna og byrjar kl. 17,00 og strax á eftir honum leika svo karlar í 2.flokki en sá leikur ætti að öllu venjulega að byrja öðru hvoru megin við hálf átta.     ÁFRAM SA ............

Leik kvöldsins frestað vegna veðurs

Nú um helgina áttu að vera 3 leikir hér í Höllinni. Í kvöld átti að vera leikur á milli SA og SR í 2.flokki karla en þeim leik er frestað vegna ófærðar á milli landshluta en á morgun kl. 17,00 munu eigast við í meistaraflokki kvenna SA Ynjur og kvennalið SR en strax á eftir þeim leik munu etja kappi í 2.flokki karla SA og SR. Það er því í boði frábær fjölskyldu skemmtan hér í Skautahöllinni seinnipartinn á morgun og hvetjum við nú alla velunnara okkar og íþróttarinnar að mæta og halda uppi stemmingu í húsinu sínu liði til stuðnings.   ÁRAM SA .....

Bræður hljóta viðurkenningar

Á dögunum veitti félagið viðurkenningar til íþróttamanna sem þóttu hafa skarað framúr á árinu 2010, líkt og venjan er við lok árs.  Sú skemmtilega staða kom upp að það voru bræður sem hlutu viðurkenningu, annars vegar Jón Gíslason fyrir íshokkí og hins vegar Jens Gíslason fyrir krullu. 


Jens hefur látið að sér kveða í krullunni undanfarin ár en hann spilaði íshokkí upp alla yngri flokka og upp í meistaraflokk hér á árum áður, sjálfsagt í kringum 1995.  Faðir þeirra Gísli Kristinsson hefur verið í fararbroddi í krullunni frá upphafi en hann var fyrsti formaður krulludeildarinnar sem stofnuð var á aðalfundi Skautafélagsins árið 1996.  Hann var jafnframt valinn krullumaður ársins árið 2004.

 

Myndir úr leik Jötna og Víkinga

Tvö myndasöfn eru frá þessum leik. Sigurgeirs er hér og Elvars er hér.

Nýársmótið: Stórir sigrar

Garpar skelltu Mammútum, nýliðar upplifðu stóran sigur.

Víkingar unnu Jötna í kvöld

Í kvöld mættust í Skautahöllinni á Akureyri í býsna skemmtilegum leik Víkingar og Jötnar.  Þeir fyrrnefndu voru sterkari aðilinn að þessu sinni en Jötnar voru óvenju sprækir og gerðu oft harða hríð að marki Víkinga.  Jötnar skoruðu alls 4 mörk, en þar voru að verki Helgi LeCunt með tvö mörk, Elvar Jónsteinsson með eitt og Sigmundur Sveinsson með eitt.

Annað markið hans Helga var í skrautlegi kantinum því eftir að hafa komist einn gegn tók hann skot sem geigaði og fór í rammann fyrir aftan, þaðan til baka í Ómar markmann og inni í markið.  Sjálfsmark hjá Ómari, en mark hjá LeCunt engu að síður.  Markið hans Elvar var jöfnunarmark í 1 - 1 en það kom eftir að hann pressaði vel á Ingvar Jónsson, stal af honum pekkinum í krísunni og gólfsveiflaði pekkinum í skeytin fram hjá Ómari.  Það er skemmst frá því að segja að Ómari var skipt út fyrir Veigar Árnason um miðbik leiksins.

Slóð á útsendingu

http://www.ustream.tv/channel/jotnar-vikingar-040111

LIVE show

 

 

Jötnar mæta Víkingum í kvöld kl. 19.30

Í kvöld kl hálf átta spila Jötnar gegn Víkingum. Í síðasta leik liðanna tóku Víkingar Jötna í kennslustund og unnu 12-2 en leikinn þar á undan unnu Jötnar með þremur mörkum gegn tveimur svo þarna er greinilega ekkert sjálfgefið og vel þess virði að leggja leið sína í höllina og skemmta sér yfir góðum hokkíleik. Við verðum með prufuútsendingu á netinu live í mynd, tengill verður settur inn á eftir.

Nýársmót Krulludeildar - upphitun fyrir Íslandsmótið

Nýársmót Krulludeildar hefst miðvikudagskvöldið 5. janúar.