Æfingaleikur við Narfa á fimmtudagskvöld

Mér sýndist á narfavefnum hjá Sigga Sig. að meistaraflokkurinn okkar hefði óskað eftir aðstoð narfamanna við upprifjun í íshokkí. Gaman verður að sjá hvort þessi kennslustund dugir okkar mönnum til sigurs um helgina gegn Birninum hér í Skautahöllinni á Akureyri (0;

Nýjar reglugerðir samþykktar í stjórn ÍHÍ

meira hér

Hokki leikur.

Skoðið þennan leik....http://www.b2.is/?sida=tengill&id=80236.

SA með 6 verðlaun á Bikarmóti

Bikarmóti 2004 í listhlaupi fór fram nú um helgina og lauk með glæsilegum árangri SA.

Úrslit

SA - Björninn

Staðan í kvennaleiknum eftir 2. leikhluta var SA 2 mörk Björninn 0 ,

Lokastaða 3 - 0 fyrir SA stelpunum, góóóóðar stelpur. Smelltu hér til að skoða myndir frá leiknum (ekki allar 100% en so what)

NHL ALL-STAR Lið á Evróputúr!!

Ójá, það er víst eitthvað ógurlegt all-star lið á leiðinni til evrópu. Ekki ætla þeir þó að heimsækja klakann, en ef þið eigið leið um þessar borgir. Bratislava (Slovakíu), Moskvu eða st.Pétursborg (Rússlandi), Bern (Sviss), Riga (Lettlandi), Karlstad, Jönköping,Linköping (Svíþjóð),Osló(Noregi), Katowice(Póllandi), daganna 7-23 desember næstkomandi, þá endilega kíkja. Hér er listi með nöfnum leikmanna og er hann ekkert slor!!Martin Brodeur (New Jersey)
Dominik Hasek (Ottawa)

Rob Blake (Colorado)
Chris Chelios (Detroit)
Sergei Gonchar (Boston/Metallurg Magnitogorsk)
Pavel Kubina (Tampa Bay/Vitkovice)
John-Michael Liles (Colorado)
Mattias Norström (Los Angeles)
Sean O'Donnell (Phoenix)
Robyn Regehr (Calgary)
Rhett Warrener (Calgary)

Daniel Alfredsson
(Ottawa/Frölunda)
Tony Amonte (Philadelphia)
Daniel Brière (Buffalo/SC Bern)
Anson Carter (Los Angeles)
Tim Connolly (Buffalo/SCL Tigers)
Alexandre Daigle (Minnesota)
Tie Domi (Toronto)
Kris Draper (Detroit)
Sergei Fedorov (Anaheim)
Martin Havlat (Ottawa/Dynamo Moscow)
Jaromir Jagr (New York Rangers/Avangard Omsk)
Robert Lang (Detroit)
Glen Murray (Boston)
Rick Nash (Columbus/Davos)
Petr Nedved (Phoenix/Sparta Prague)
Luc Robitaille (Los Angeles)
Mats Sundin (Toronto)
Petr Sykora (Anaheim/Metallurg Magnitogorsk)
Joe Thornton (Boston/Davos)
Ray Whitney (Detroit)

Bikarmót 2004 í Skautahöllinni Akureyri

Nú um helgina 20. - 21. nóvember fer fram Bikarmót í listhlaupi. Keppt verður í 5 flokkum. Á laugardeginum keppa 8 ára og yngri A, 10 ára og yngri A, 12 ára og yngri A, Novice og Junior. Á sunnudeginum keppa Novice og Junior í Free Skating.

Mótssetning er kl. 9:45 á laugardeginum og verðlaunaafhending kl. 14:00. Keppni hefst kl. 8:50 á sunnudeginum og verðlaunaafhending kl. 11:10.

Dómaratilnefningar

Dómaratilnefningar á leiki framundan

Björninn vs S.A. laugardag 20/11 kl 18:15 kvennaflokkur

Já stelpurnar okkar fara suður um helgina og spila við Björninn. Búast má við hörkuleik beggja liða, því heyrst hefur af njósnörum S.A. að bæði lið hafa æft af kappi fyrir þennan leik. Við hvetjum fólk til mæta í höll er kennd við egil, kl.18:15 og hvetja áfram sitt lið. ÁFRAM S.A.

SR vann Björninn í 2. flokki í gærkvöldi

Tekið af vef SRinga

Í gærkvöldi lék SR við Björninn í Íslandsmóti 2. flokks en þessi leikur fór fram í Skautahöllinni í Laugardal. Leikurinn var mjög kaflaskiptur svo ekki sé meira sagt.