Starfið hafið af miklum krafti
09.09.2010
Nú í haustbyrjun er starfið í Skautahöllinni komið í eðlegar skorður og starfsemnin komin á fullt jafnt hjá deildum félagsins sem og Skautahöllinni. Æfingar félagsins hófust um mánaðamótin sem og almenningstímar. Deildirnar hafa verið að kynna sitt starf, gengið hefur verið í skóla og bæklingum dreift. Nýskráningar ganga vel og blikur eru á lofti um blómlegan vetur. Mótin fara senn að hefjast hjá deildum en nú um helgina verður Asetamót hjá mfl karla í íshokkí í Reykjavík sem er helgarmót ætlað til að koma mönnum í gang fyrir veturinn. Um aðra helgi verður innanfélagsmót fyrir A og B keppendur hér í Skautahöllinni og svo í lok mánaðarins eða 27. september hefst Akureyrarmót hjá krulludeild.
