Leikir helgarinnar
30.09.2010
Um helgina fer fram einn leikur í Íslandsmóti meistaraflokks karla þegar SA-Jötnarnir taka á móti Birninum í Skautahöllinni á Akureyri kl. 17:30. Jötnarnir komu á óvart í fyrsta leik mótsins með sigri á SR og það verður því forvitnilegt að fylgjast með þeim um helgina. Bjarnarmenn eru að koma norður aðra helgina í röð og ætla sér væntanlega að krækja í einhver stig að þessu sinni, en þeir riðu ekki feitum hesti frá viðureign síðustu helgar gegn Víkingunum.