Vorsýning 2011
Þá er vorsýningin búinn og alveg hægt að hrósa stelpunum fyrir glæsilega sýningu.
Hér eru nokkrar myndir sem gaman er að skoða.
Þá er vorsýningin búinn og alveg hægt að hrósa stelpunum fyrir glæsilega sýningu.
Hér eru nokkrar myndir sem gaman er að skoða.
Í síðustu viku var haldinn Aðalfundur íshokkídeildar þar sem farið var í venjuleg aðalfundarstörf. Ný hokkístjórn var kosin en hún þykir merkilega lík þeirri fyrri en aðeins var ein breyting á milli ára. Jón Benedikt Gíslason fór úr stjórn, enda fluttur til Danmerkur, og í hans stað kom Sæmundur nokkur af Leifsson ættbálkinum. Aðrir í stjórn voru kosnir rússneskri kosningu og þeir eru:
Lengi hefur verið barist fyrir lengra ístímabili án þess að nokkuð gerist. Nú hefur listhlaupadeildin hafið enn eina baráttuna til að reyna að fá þetta í gegn, búið er að senda bréf til bæjarstjóra, bæjarráðs og íþróttaráðs um von um einhver svör, einnig er búið að senda á flesta fjölmiðla landsins og vonandi fær þetta einhverja umfjöllun því ef ekkert gerist getum við pakkað saman og hætt.
Á Akureyrarmótinu í listhlaupi sem lauk í dag var krýndur nýr Akureyrarmeistari í listhlaupi á skautum. Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir stóð uppi sem sigurvegari í Novice A flokknum og hlaut því titilinn Akureyrarmeistari í listhlaupi á skautum 2011. Hún hefur staðið sig gríðarlega vel í vetur, unnið vel og er því vel að titlinum komin. Við óskum Hrafnhildi Ósk innilega til hamingju með titilinn og frábæran árangur í vetur.
Akureyrarmótið gekk vel og stóðu stelpurnar okkar sig gríðarlega vel og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn í dag.
Myndir frá mótinu er hægt að skoða HÉR.
Það verða æfingar á morgun!
C1 + C2 eru kl. 8:15-10:00
D er kl. 10:00-11:00 (ekki leikskólahópurinn)
A og B eru um kvöldið eins og venjuleg tímatafla sýnir
:D