12.03.2013
Mammútar tryggðu sér deildarmeistaratitil Íslandsmótsins í krullu með sigri á Görpum í framlengdum leik toppliðanna í gærkvöldi. Tvö lið örugg í úrslit, öll hin eiga enn möguleika.
11.03.2013
Nú eru komin inn nokkur ný myndalbúm á hokkísíðuna, enda hefur Ásgrímur Ágústsson verið tíður gestur hér í höllinni að undanförnu. Hann skilaði í hús í dag myndum úr hokkíleikjum 7., 9. og 12. febrúar og svo úr úrslitaleik SA og Bjarnarins í kvennaflokki sl. föstudagskvöld.
11.03.2013
Mótanefnd ÍHÍ hefur ákveðið leikdaga í úrstliakeppni Íslandsmóts karla í íshokkí.
11.03.2013
Í kvöld, mánudagskvöldið 11. mars, fer fram sjötta umferð Íslandsmótsins í krullu.
09.03.2013
Í dag er brotið blað í sögu Skautafélags Akureyrar með tilraunaútsendingum frá Minningarmótinu um Garðar Jónasson.
08.03.2013
Lið SA tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí kvenna með 8-1 sigri á Birninum í kvöld. Sjöundi Íslandsmeistaratitillinn í röð. Hafa unnið í tólf af þeim fjórtán skiptum sem keppt hefur verið um titilinn.
Myndirnar með þessari frétt tók Sigurgeir Haraldsson.
08.03.2013
Bein textalýsing frá leik SA og Bjarnarins um Íslandsmeistaratitil kvenna í íshokkí 2013.
08.03.2013
Laugardaginn 9. mars koma saman sextíu hokkíkonur frá öllum þremur skautafélögunum – SA, Birninum og SR – og etja kappi í móti sem helgað er minningu Garðars heitins Jónassonar – Gæsa.
07.03.2013
Föstudaginn 8. mars - á alþjóðlegum baráttudegi kvenna - fer fram úrslitaleikur Íslandsmótsins í íshokkí kvenna. Leikurinn fer fram í Skautahöllinni á Akureyri og hefst kl. 20.00 – ef veður og færð leyfa.
Vakin er athygli á að skautadiskó fellur niður að þessu sinni vegna leiksins.