29.11.2011			
	
	Rennusteinarnir leika gegn Ís-lendingum í undanúrslitum og Skytturnar gegn Mammútum.
 
	
		
		
			
					29.11.2011			
	
	Heil og sæl,
Næstu helgi  2-4.desember verður haldið Íslandsmót í listhlaupi á skautum í Skautahöllinni á Akureyri. Á þetta mót fáum við keppendur úr öðrum félögum og vonandi marga áhorfendur. 
 
	
		
		
			
					28.11.2011			
	
	Þeir sem hafa áhuga á að panta félagsbúning listhlaupadeildar (skautapeysur og/eða skautabuxur úr flísefni frá 66°Norður) fyrir jólin geta haft samband við Jónu (jona@nordlenska.is) fyrir 2. desember 2011.
 
	
		
		
			
					28.11.2011			
	
	Skráningarfrestur í mótið er til hádegis miðvikudaginn 30. nóvember. Miðað er við að spila mótið næstu þrjá miðvikudaga.
 
	
		
		
			
					28.11.2011			
	
	Í kvöld, mánudagskvöldið 28. nóvember, fer fram þriðja og síðasta umferð riðlakeppni Gimli Cup.
 
	
		
		
		
			
					28.11.2011			
	
	Stelpurnar stóðu sig frábærlega á Kristalsmóti Bjarnarins sem haldið var í Egilshöll á laugardaginn var. Þar landaði Halldóra Hlíf gullinu í Junior C og hún Eva Björg bronzi í 10 C. Við óskum öllum stelpunum til hamingju.
 
	
		
		
		
			
					27.11.2011			
	
	Yngra lið Skautafélags Akureyrar í kvennaflokki, Ynjur, lögðu að velli lið Bjarnarins í gærkveldi.
 
	
		
		
		
			
					26.11.2011			
	
	Rétt í þessu var að ljúka leik Jötna og Bjarnarins hér í Skautahöllinni á Akureyri.  Björninn var fyrir leikinn almennt talið sigurstranglegra liðið en mátti síðan teljast heppinn að sleppa með skrekkinn eftir mikla baráttu við Jötnana.
 
	
		
		
			
					24.11.2011			
	
	Jötnar taka á móti Birninum í karlaflokki kl. 16,30 og Ynjur og Björninn í mfl. kvenna mætast um kl. 19,00 eða strax að loknum fyrri leiknum.
 
	
		
		
		
			
					23.11.2011			
	
	Í gærkvöldi áttust við í Grafarvogi Víkingar og Björninn.  Nokkur spenna var fyrir þennan leik þar sem leikur Bjarnarins hefur verið stígandi í vetur en þeir lögðu m.a. SR í síðasta leik.  Víkingar mættu með fullskipað lið eða rétt tæpar 4 línur og Josh Gribben sem stjórnaði bekknum.