Fyrstu leikir Íslandsmótsins

Norðanmenn gerðu ekki góða för til Reykjavíkur, þeir steinláu fyrir sprækum sunnanmönnum.

Úrslit leikjanna urðu:             Björninn - SA     13 - 1                  SR - Narfi          13 - 3

Breiting á reglum um búnað markmanna

- IIHF

New goalkeeper equipment measurements approved - in use as of 2006-2007 season.

Upprunalega fréttin hér

 

 

Skemmtileg kveðja frá Beijing, China

Síðunni barst óvænt og skemmtileg kveðja um langan veg.
 
Jouni Tormanen
jouni@cvsweb.net

Hi I lived in Iceland 92-95 and was coaching 2 years in SR and one year in Bjørninn. Maybe some of you guys remember me. I live now in Beijing, China and know some of the people in Nordic Vikings. It's nice to see that they could sign Jon to their team. Give Jon my mail address and phone number and ask him to contact me when he's here. My cell phone is xxxxxxx. I have unfortunately forgotton my Icelandic so I have to write in English. Good luck to games. Jouni

Fyrsti leikur leiktíðar 2005-2006!!

Laugardaginn 17 sept. munu meistararnir í S.A. leika sinn fyrsta leik á leiktíðinni 2005-2006. Við stórliðið í Grafarvogi...Björninn!  já ég segji það aftur, að þora eða skora!!!  Leikurinn hefst kl 16:00 og er miðaverð 500 kr. Björninn teflir fram sama liði og í fyrra, fyrir utan einum sænskum leikmanni sem er talinn geta tröllriðið íslensku deildinni einn og óstuddur. En það  mun ekki stoppa meistaranna. Þrátt fyrir brotthvarf nokkura leikmanna úr liði S.A. eru þó ungir og efnilegir leikmenn sem munu fylla í skarð þeirra sem fóru. Stemningin er góð fyrir átök helgarinnar og eru skilaboð þjálfarans skýr, SIGUR!!! Við hvetjum fólk til að mæta í Egilshöllina og horfa á leikinn. Seinna um kvöldið í Laugardalnum eigast við S.R. og Narfi kl 20:00.    Allir að mæta og styðja sitt lið. ÁFRAM S.A.!

Skráningadagur í skautahöllini í dag Fimmtudag

Formlegur skráningardagur verður í Skautahöllinni í dag fimmtudag, næsta þriðjudag og fimmtudaginn eftir viku. Þá geta iðkendur og forráðamenn komið og skráð sig gengið frá greiðslum eða greiðsluformi. Þergar gengið er frá æfingagjaldi eru afhentar rauðar hokkímerktar peysur og iðkandi getur fengið úthlutað netfangi@sasport.is. Auglýsingin í dagskránni misfórst þessa vikuna svo endilega verið dugleg við að láta þetta berast. kv..Stjórnin

Leikfimitími Oddeyrarskóla

Leikfimitíminn í leikfimisal Oddeyrarskóla tókst með ágætum og voru allir ánægðir með þessa nýbreytni og aukapúl

Byrjendatímarnir fengu frábærar viðtökur

Það var hreint út sagt frábær mæting í fyrsta byrjendatímann í gær og allir virtust skemmta sér hið besta. Takk allir fyrir komuna og sjáumst vonandi aftur á fimmtudaginn næsta kl. 15.00 

Nýju leikfimistímarnir

5. og 4. Flokkur munið að mæta í leikfimisalinn við Oddeyrarskóla á morgun mánudag kl. 16.15. Jan tekur þar á móti ykkur og verður með æfingu frá 16.30 til 17.30. MUNIÐ ALLIR EIGA AÐ MÆTA

Byrjendatímum LOKIÐ

Nú er Fríu Byrjendatímunum lokið í þetta skiptið en auðvitað eru allir velkomnir sem vilja prófa hokkí og er um að gera fyrir þá að mæta í skautahöllina á æfingatímum ( tímatafla er á forsíðu heimasíðunnar ) eða afla sér upplýsinga með fyrirspurn ( hnappur í valmyndinni hér til vinstri ) hér á síðunni eða hringja í 660-4888 Reynir.

Athugið að nýjir iðkendur fá að byrja á hálfu gjaldi. 

Kveðja        Hokkí-Stjórnin

Hér fyrir neðan má sjá hvernig fyrirkomulagið var með byrjendatímana.

Núna á Sunnudaginn næsta 11. sept. byrjar hjá hokkídeildinni SKAUTASKÓLI / LEIKUR Á SKAUTUM undir stjórn þjálfara og verður kl. 16 til 17. Allt frítt til 10.Október. NÚ ER UM AÐ GERA AÐ KOMA OG PRÓFA OG HAFA GAMAN AF.

Erlingur farinn.

Já enn er meistaraflokkur S.A. að missa leikmenn en Erlingur Sveinsson hefur ákveðið að gangast í lið Narfa frá Hrísey. Við þökkum Erlingi fyrir samveruna í gegnum árin. Áfram S.A.!!