Áramótamótið

Áramótamótið verður haldið laugardaginn 28. desember

Aldís Kara Bergsdóttir Skautakona LSA 2019

Á jólasýningunni í gær var Aldís Kara Bergsdóttir valin skautakona Listhlaupadeildar 2019 auk þess sem hún fékk afhenta viðurkenningu frá Skautasambandi Íslands sem Skautakona Íslands 2019

Jólasýning Listhlaupadeildar 2019

Jólasýning Listhlaupadeildar 2019 var haldin í gær. Iðkendur deildarinnar göldruðu framúr ermunum hugljúfa sýningu sem kveikti jólaandann í brjósti gesta, sem að þessu sinni voru fjölmargir. Stelpurnar í 1.hópi fengu svo liðsinni frá nokkrum hokkýdrengjum sem lífguðu sannarlega upp á sýninguna. Við þökkum öllum sem mættu fyrir komuna.

JÓLAFRÍ KOMIÐ Í DEILDARKEPPNUNUM YTRA - SILVÍA MARKAHÆST Í SÆNSKU 1. DEILDINNI

Nú er komið jólafrí í deildarkeppnunum erlendis en þar eigum við fjölmarga leikmenn sem allir hafa staðið sig frábærlega á fyrri hluta móts. Silvía Rán Björgvinsdóttir sem spilar með Södertälje í sænsku 1. deildinni er bæði stigahæsti og markahæsti leikmaður 1. deildarinnar sem stendur. Silvía hefur raðað inn mörkunum í vetur og er komin með 21 mark í 18 leikjum og 8 stoðsendingar ofan á það og 29 stig í heildina. Liðið hennar Södertälje er í öðru sæti austur-deildarinnar og hefur unnið 15 leiki en aðeins tapað 3 á tímabilinu. Sunna Björgvinsdóttir sem einnig spilar með Södertälje lenti í meiðslum síðari hluta tímabilsins en hefur einnig verið dugleg í markaskorun en hún er með 16 stig í 14 leikjum og með 6 stig í síðustu tveimur leikjum eftir að hún snéri aftur úr meiðslunum.

Aldís Kara Bergsdóttir skautakona ársins hjá ÍSS

Aldís Kara Bergsdóttir hefur verið valin Skautakona ársins 2019 af stjórn Skautasambands Íslands. Aldís Kara æfir með Skautafélagi Akureyrar undir leiðsögn Darja Zajcenko og keppir í Junior Ladies (Unglingaflokki kvenna). Þetta er í fyrsta sinn sem hún hlýtur titilinn skautakona ársins.

Með sigur inn í jólafríið

SA vann sanngjarnan 7:2 sigur á liði Reykjavíkur í Skautahöllinni á Akureyri í kvöld og fara því með 16 stig í jólafríið gegn 5 stigum Reykjavíkur þegar eftir er að leika þrjá leiki í deildinni, þannig að Reykjavíkurliðið getur ekki náð þeim að stigum.

Jólasýning listhlaupadeildar sunnudaginn 22. desember kl. 17.00

Listhlaupadeild Skautafélags Akureyrar stendur fyrir hinni árlegu Jólasýningu sunnudaginn 22. des nk. kl: 17, þar koma allir okkar iðkendur saman með töfrandi sýningu þar sem þema sýningarinnar í ár er The night before christmas. Láttu ekki þessa frábæru sýningu fram hjá þér fara, sjón er sögu ríkari. Í lok sýningarinnar munum við veita viðurkenningu til Skautakonu ársins.

Karlalandsliðið í íshokkí hefur leik í undankeppni Ólympíuleikanna í dag

Karlalandsliðið í íshokkí er nú statt í Brasov í Rúmeníu þar sem það hefur leik í undankeppni Ólympíuleikanna í dag. Fyrsti andstæðingur liðsins er Kyrgyztan en leikurinn hefst kl. 13.00 á íslenskum tíma og má sjá beina útsendingu frá leiknum hér. Ísland mætir svo Ísrael á morgun og Rúmeníu á laugardag en aðeins efsta liðið í riðlinum fer áfram í næstu umferð.

Allar æfingar falla niður í dag í Skautahöllinni vegna veðurs

Listhlaupadeild og íshokkídeild hafa ákveðið að allar æfingar falla niður í Skautahöllinni í dag vegna veðurs. Njótið dagsins.

Æfingar yngri flokka í listhlaupi og íshokkí falla niður í dag

Allar æfingar yngri flokka í listhlaupi og íshokkí falla niður í dag vegna veðurs! Eldri flokkar fá upplýsingar um sínar æfingar síðar í dag í gegnum sportabler.