Vinamót LSA og Slippsins byrjar á morgun

Helgina 12. - 13. mars fer fram Vinamót LSA og Slippsins í Skautahöllinni á Akureyri. Vinamótið er keppni C keppenda og er það ætíð vel sótt og er það eins í ár.  85 C keppendur úr öllum aldurshópum  frá Skautafélagi Akureyrar, Skautafélagi Reykjavíkur og Birninum munu etja kappi og sýna hæfni sína á svellinu. Því má víst telja að mikið fjör verði í Skautahöllinni á laugardags- og sunnudagsmorgun.

Öllum er velkomið að kíkja við í höllinni og sjá krakkana spreyta sig á svellinu. Foreldrafélag LSA verður með veitingasölu á meðan á keppni stendur.