Vel heppnað Barna og unglingamót

Novice B
Novice B

Það má með sanni segja að það hafi verið vel heppnað Barna- og unglingamótið sem Skautafélag Akureyrar og Skautasamband Íslands stóðu fyrir um helgina, árangur SA var góður. Öll úrslit verða birt á heimasíðu skautasambandsins von bráðar á slóðinni www.skautasamband.is Á þessari slóð má sjá umfjöllun RÚV um mótið http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4497917/2010/02/28/18/
 
Íslandsmót barna- og unglinga í listhlaupi á skautum fór fram um helgina. 74 skautarar tóku þátt í mótinu frá þremur félögum Birninum, Skautafélagi Reykjavíkur og Skautafélagi Akureyrar tóku þátt, en keppt var í 11 flokkum. Sjá má augljósar framfarir í heildina meðal allra félaga og íslenskir skautarar greinilega á hraðri uppleið, en íþróttin er mjög ung. Skautasamband Íslands fagnaði um helgina 15.ára afmæli sínu en einungis 10 ár eru frá því að skautahöll var reist á Akureyri.. Skautafélag Reykjavíkur hampaði flestum gullmedalíum á mótinu, en fulltrúar Listhlaupadeildar Skautafélags Akureyrar náðu hins vegar ágætum árangri og tryggður sér 7 verðlaun af þeim 17 sem félagið gat náð í. 
 
 Meðfylgjandi er mynd af flokki Noveice B, en þar er Urður Frostadóttir SA í 1.sæti

Í lesa meira má sjá það sem undirrituð man í fljótu bragði um verðlaun fulltrúa SA á mótinu.

Í jöfnum og sterkum flokki 12 ára og yngri B var Guðrún Brynjólfsdóttir í 2. sæti. Við áttum fleiri stelpur ofarlega því að Hrafnhildur Ósk var í 4,sæti og Arney Líf í því 5. Í flokki Novice B gerði Urður Frostadóttir sér lítið fyrir og sigraði, en sá flokkur er að taka miklum framförum um þessar mundir og fleiri fulltrúar SA að gera mjög góða hluti í þeim flokki. Í flokki Junior B gerðu fulltrúar SA sér lítið fyrir og tóku öll efstu sætin.  Andrea sigraði mjög örugglega, í 2.sæti var Karen Björk og í því þriðja var Fjóla, sem var 0,01 stigi á undan Auði og munaði því svo sannarlega litlu á 3. og 4. sæti. Í flokki 10 ára og yngri A náði Elísabet Ingibjörg 2.sæti sem er frábær árangur. Í flokki Novice A var Helga Jóhannsdóttir í 2.sæti. SA náði því að tryggja sér 7 verðlaun af þeim 17 sem félagið gat nát í, sem er bara nokkuð gott.