Valkyrjur enn á sigurbraut

Ljósmynd: Elvar Pálsson
Ljósmynd: Elvar Pálsson

Valkyrjur unnu sannfærandi sigur á Skautafélagi Reykjavík ur í Laugadalnum í gærkvöldi, lokatölur 7 - 1.   Fyrsta lotan fór 3 - 1 og mörk Valkyrja skoruðu Díana Björgvinsdóttir með 2 og Hrund Thorlacius með 1 en mark SR skoraði Karítas sem spilaði sem útispilara lánsleikmaður frá Birninum.  Karitas er aðalmarkvörður Bjarnarins og greinilega liðtækur markaskorari.

2. lota fór 2 - 0 og mörkin skoruðu Arndís og Sarah Smiley og í 3. lotu komu svo síðustu tvö mörkin og þar var Arndís aftur á ferðinni og Hrund.

Leikurinn var einnig merkilegur fyrir þær sakir að báðir markmenn Valkyrja forfölluðust og því fór varnarmaðurinn Védís í markið.  Þess má geta að hún hefur aldrei farið áður í mark en stóð sig með stakri prýði.  Valkyjur juku með þessu enn forskotið á toppi deildarinnar og hafa nú tryggt sér deildarmeistara titilinn en úrslitakeppnin er enn óskrifað blað og þá skiptir staðan í deildinni engu máli.