Útför Sólveigar Huldu Valgeirsdóttur streymt í félagsaðstöðunni

Mánudaginn 9. janúar kl. 13:00 verður Sólveig Hulda Valgeirsdóttir jarðsungin frá Akureyrarkirkju.

Í samráði við fjölskyldu Sólveigar verður útförinni einnig streymt í félagsaðstöðunni á 2. hæð Skautahallarinnar, þar sem ljóst er að færri munu komast að í kirkjunni en vilja.

Öllum er velkomið að mæta, koma saman og minnast Sólveigar. Að athöfn lokinni verður boðið upp á léttar kaffiveitingar.