Úrslitakeppnin í Toppdeild karla hefst næsta þriðjudag, 10. mars. Skautafélag Reykjavíkur er deildarmeistari eftir spennandi úrslitaviðureign í Laugardal um síðustu helgi þar sem báðir leikir fóru í framlengingu og SR vann þar í bæði skiptin og tryggðu sér heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni. Leikið verður svo til skiptis heima og að heimann þangað til annað liðið nær að vinna þrjá leiki og tryggja sér þannig Íslandsmeistaratitlinn í íshokkí.
Leikirnir í úrslitakeppni karla:
Leikur 1: Þriðjudaginn 10. mars í Reykjavík kl. 19:45
Leikur 2: fimmtudaginn 12. mars á Akureyri kl. 19:30
Leikur 3: laugardaginn 14. mars í Reykjavík kl. 17:45
* 4. leikur þriðjudaginn 17. mars á Akureyri kl. 19:30
* 5 leikur fimmtudaginn 19. mars í Reykjavík kl. 19:45
* leikir 4 og 5 ef til koma ef annað liðið sé ekki búið að vinna 3 leiki.